Viðskipti innlent

Skuldabréf Landabankans halda áfram að hækka

Skuldabréf Landsbankans halda áfram að hækka og eru í dag skráð á 7% af nafnverði á viðskiptavefnum Keldan.is. Í gærdag var gengi þeirra hinsvegar skráð á 6,5% af nafnverði.

Hið sama á raunar við um skuldabréf Kaupþings, Glitnis og Straums sem hafa öll hækkað um eitt prósentustig milli daga.

Eins og fram kom í frétt hér á síðunni hækkuðu skuldabréf Landsbankans um tæp 40% í verði skömmu eftir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands tilkynnti um ákvörðun sína í Icesave málinu í upphafi mánaðarins.

Verðið á skuldabréfum í föllnu íslensku bönkunum hefur verið skráð á vefsíðuna Keldan frá því að sú síða opnaði fyrir tæplega þremur mánuðum. Verðið á skuldabréfum Landsbankans lá lengst í kringum 4% af nafnverði bréfanna fram að ákvörðun forsetans. Eftir ákvörðun forsetans hækkuðu bréfin upp í 5,5% af nafnverði eða um tæp 40%. Síðan hafa þau haldið áfram að hækka.

Markaðurinn með þessi skuldabréf er óskilvirkur og ógagnsær en þeir sem kaupa Landsbankabréfin eru að veðja á að eitthvað fáist úr þrotabúi bankans umfram forgangskröfur. Verðið á bréfunum er lítt skiljanlegt í ljósi þess að margoft hefur komið fram að ekki fáist upp í forgangkröfurnar í búið.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×