Þrír bankar eiga sjö hundruð fasteignir 20. september 2010 05:00 Vilhelm
Íbúðalánasjóður (ÍLS) og viðskiptabankarnir þrír eiga rúmlega 1.518 fasteignir víða um land. Þar af eru 1.208 einbýlishús, raðhús og annað íbúðarhúsnæði, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Gangi verstu spár eftir munu ÍLS og bankarnir þrír hafa leyst til sín í kringum 1.550 íbúðir um næstu áramót. Bankarnir seldu 33 íbúðir í síðasta mánuði og ÍLS sex. Það sem af er september hefur sjóðurinn selt fjórtán íbúðir. Til samanburðar seldust 298 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og á Árborgarsvæðinu í síðasta mánuði, samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands (áður Fasteignaskrá Íslands). Bæði yfirtaka á íbúðarhúsnæði og sala í gegnum fasteignasölur er þinglýst og skráð sem kaupsamningur. ÍLS hefur eignast 539 íbúðir frá áramótum og á sjóðurinn 822 íbúðir. Tæpur helmingur þeirra er á Suðurnesjum og Austurlandi. Tólf prósent íbúðanna sem sjóðurinn hefur tekið yfir eru á höfuðborgarsvæðinu. Öðru máli gegnir um bankana. Þeir eiga 696 fasteignir, þar af flokkast 386 fasteignir til íbúðarhúsnæðis. Meirihluti yfirtekins íbúðarhúsnæðis Arion banka og Landsbankans eru á höfuðborgarsvæðinu, eða á bilinu sjötíu til 75 prósent. Rétt rúm fjörutíu prósent íbúðarhúsnæðis Íslandsbanka eru á höfuðborgarsvæðinu. Íslandsbanki gerir ráð fyrir að eiga fasteignir í eitt til tvö ár. Landsbankinn væntir þess að eiga þær lengur, eða í þrjú til fimm ár. Samkvæmt upplýsingum frá bönkunum og Íbúðalánasjóði er þeim sem missa húsaskjól sitt í hendur lánardrottna gefinn kostur á að leigja íbúðarhúsnæðið í allt að eitt ár í senn. Í sumum tilvikum er samningurinn styttri, allt frá þremur til sex mánaða og miðast við að börn geti lokið skóla. Af 822 íbúðum ÍLS eru 227 í leigu og 202 í rýmingu. Tæpur helmingur íbúðanna stendur auður. jonab@frettabladid.is
Mest lesið „Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““ Atvinnulíf Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Viðskipti innlent Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Viðskipti innlent Tvöfaldar tolla á innflutt stál og ál Viðskipti erlent Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent Gervigreindin og vaxandi vítahringur nýútskrifaðra Atvinnulíf Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils Viðskipti innlent Sigurður Jökull stýrir Cruise Iceland Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum Sigurður Jökull stýrir Cruise Iceland Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK Shein ginni neytendur til skyndikaupa Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Indó skoraði hæst í Sjálfbærniásnum Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Verðbólga lækkar um 0,4 stig Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Bein útsending: Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Vextir lækka hjá Íslandsbanka Lokun kísilvers á Bakka: „Þetta er grátbölvað“ Arion vill sameinast Kviku Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Bein útsending: Ársfundur Samáls Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Play tekur flugið til Agadir Halla nýr yfirlögfræðingur Emblu Medical Stöðva rekstur á Bakka í júlí og segja 80 manns upp störfum Heimar mega kaupa Grósku Tap útgerðarinnar vegna fjárfestinga í fiskeldi nemur milljörðum Sjá meira
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent