Haukar og dúfur í peningastefnunefnd 26. mars 2010 12:27 „
Erlendis er það vinsæl íþrótt að ráða í grundvallarafstöðu einstakra meðlima peningastefnunefnda hinna ýmsu seðlabanka til vaxtastefnu viðkomandi banka. Eru sumir þeirra stimplaðir vaxtahaukar sem ávallt leggist á sveif með meira aðhaldi peningamálastefnu en kollegar þeirra, en aðrir þykja vera vaxtadúfur og þannig hallir undir minna peningalegt aðhald en gengur og gerist í nefndunum. Dæmi um þetta má t.d. finna í peningastefnunefnd Englandsbanka." Þetta segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem gluggð er í ársskýrslu Seðlabankans sem birt var í gær þar sem var að finna umfjöllum um hvernig atkvæði meðlima peningastefnunefndar bankans hefðu fallið á fyrsta starfsári hennar. Í ljósi þess að ákvörðun nefndarinnar hefur einungis verið samhljóða í þrjú skipti af níu á síðasta ári er gagnlegt að rýna stuttlega í þessa skiptingu og hvort í henni megi greina mismunandi afstöðu nefndarmanna til heppilegustu framkvæmdar peningastefnunnar. Í ljós kemur að meðlimir peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands eru ekki auðmerktir með ofangreindum stimplum, þótt greina megi mismunandi áherslur meðal þeirra. Þar sem nefndarmenn greiða jafnan atkvæði um vaxtatillögu Seðlabankastjóra er í þessu sambandi handhægast að skoða hvort nefndarmenn hafi tekið undir tillögu bankastjórans, hallast að lægri vöxtum eða kosið hærri vexti en bankastjórinn vildi við hverja vaxtaákvörðun. Hér ber raunar að hafa í huga að seðlabankastjórarnir hafa verið tveir frá því peningastefnunefnd var sett á fót við Seðlabankann, og má í raun álykta að Már Guðmundsson hafi á sér öllu meiri dúfubrag en forveri hans, Svein Harald Øygard ef marka má viðbrögð annarra nefndarmanna við tillögum þeirra tveggja. Ágætur samhljómur virðist meðal æðstu innanbúðarmanna í Seðlabankanum um framkvæmd peningastefnu bankans. Þannig tók aðstoðarbankastjórinn, Arnór Sighvatsson, ávallt undir tillögu bankastjóra í fyrra. Aðalhagfræðingur bankans, Þórarinn G. Pétursson, var heldur tregari í taum og tók tvívegis aðhaldssamari afstöðu til vaxtaákvörðunar en yfirmaður hans lagði til. Utanaðkomandi nefndarmennirnir tveir voru svo öllu meira á skjön við tillögur viðkomandi Seðlabankastjóra. Gylfi Zoega vildi þannig í fjögur skipti af níu fara aðra leið en lögð var til, og brá yfir sig dúfu- og hauksham til jafns í þeim efnum. Það er hins vegar Anne Sibert sem helst má telja til vaxtahauka í peningastefnunefndinni, og hún er jafnframt eini nefndarmaðurinn sem oftar hefur verið ósammála tillögu bankastjórans en ekki. Þannig vildi hún fjórum sinnum hafa meira peningalegt aðhald en lagt var til, einu sinni hallaðist hún að minna aðhaldi en þrisvar sinnum tók hún undir tillögu Seðlabankastjóra, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Sjá meira