Fyrirtæki fá aðgang að Microsoft Office 2010 14. maí 2010 11:09 „Þetta er stór áfangi fyrir okkur, enda eru Office og SharePoint í hópi helstu flaggskipa Microsoft," segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi
Microsoft hefur nú gefið fyrirtækjum aðgang að nýjustu útgáfu Office-skrifstofuhugbúnaðarins, Microsoft Office 2010. Um leið hefur fyrirtækið gefið út nýja útgáfu af hópvinnukerfi sínu, SharePoint 2010. Þessar lausnir eru sérhannaðar til að auka framleiðni og hagkvæmni, t.d. með því að auka notkunarmöguleika þeirra á Netinu og í farsímum.Í tilkynningu segir að þar með sé komin út ný kynslóð algengustu skrifstofuforrita sem notuð eru í heiminum; forrita á borð við ritvinnsluforritið Word, töflureikninn Excel, glæruforritið PowerPoint og samskiptaforritið Outlook, svo nokkur séu nefnd. Með þessari nýjustu útgáfu heldur Microsoft áfram þróun nýrra notendaskila Office-forritanna, en fyrirtækið gerði umfangsmiklar breytingar á þeim með síðustu útgáfu, Office 2007.Microsoft hefur lagt mikla áherslu á að þróa hugbúnaðinn í samvinnu við viðskiptavini og notendur. Til marks um það má nefna að þrefalt fleiri notendur tóku þátt í Beta-prófunum Office 2010 og SharePoint 2010 heldur en sambærilegum prófunum á Office 2007. Það gerir það jafnframt að verkum að nú þegar nota 8,6 milljónir manna um heim allan Office 2010.Fyrst um sinn er útgáfan einungis í boði fyrir þau fyrirtæki sem hafa gert leyfissamning við Microsoft, en Office 2010 verður gefið út á neytendamarkaði í næsta mánuði. Um leið er gert ráð fyrir að Office Web Apps, sem er vefútgáfa af öllum helstu Office-forritunum sem nota má án endurgjalds, verði í boði fyrir almenning.„Þetta er stór áfangi fyrir okkur, enda eru Office og SharePoint í hópi helstu flaggskipa Microsoft. Um þessar mundir leita viðskiptavinir okkar allra leiða til að hagræða í sínum rekstri og auka hagkvæmni. Því er sérstaklega ánægjulegt að segja frá því að ný rannsókn Forrester Consulting bendir til að innleiðing 2010 útgáfanna af Office, SharePoint og Exchange auk Office Communications Server 2007 R2 skili 301% arði af fjárfestingu (ROI) og borgi sig upp á rúmum 7 mánuðum. Hér eru því komnar lausnir sem virkilega skila árangri fyrir viðskiptavini okkar," segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi í tilkynningunni.
Mest lesið Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Von á hóflegum hagvexti næstu árin Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Viðskipti innlent Starfsfólk lagt inn á spítala með AI-geðrof Atvinnulíf Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Sjá meira