Viðskipti innlent

Tap lánastofnana á gengislánum nemur 108 milljörðum

Samkvæmt nýju frumvarpi efnahags- og viðskiptaráðherra um gengistryggð lán er tap lánastofnana á ólögmæti þessara lána alls 108 milljarðar króna. Frumvarpið felur í sér að öll gengistryggð bíla- og fasteignalán verði talin í sama flokki.

Frumvarp var samið efnahags- og viðskiptaráðuneytinu af því tilefni að Hæstiréttur kvað upp dóma hinn 16. júní 2010 sem skáru úr um ólögmæti gengistryggðra lána og dóms 16. september 2010 um vaxtareikning slíkra lána. Í athugasemdum með frumvarpinu segir að þótt dómar Hæstaréttar hafi létt af mestu óvissunni sé engu að síður hætt við að ágreiningur verði gerður um lögmæti fjölda samninga á víðtæku sviði skammtíma- og langtímafjármögnunar.

Þá hafi vaknað spurningar um jafnræði meðal skuldra, einkum á neytendamarkaði. Meginmarkmið frumvarpsins sé því að draga úr þessari óvissu. Til grundvallar séu lögð þau sanngirnisrök að sambærileg mál fái sambærilega niðurstöðu auk þess að tryggja réttaröryggi við uppgjör lána.

Fram kemur í frumvarpinu að mat á kostnaði fjármálafyrirtækja vegna dóma Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggðra lána liggi nú fyrir en samkvæmt greiningu Fjármálaeftirlitsins er tap lánastofnana vegna ólögmætis gengistryggðra lána alls 108 milljarðar króna.

Tilgangur frumvarpsins er að fyrst og fremst að gæta jafnræðis meðal einstaklinga sem tekið hafa lán í erlendri mynt eða lán sem tengjast erlendri mynt með einum eða öðrum hætti.

Ljóst er að dómsvaldið er alla jafna ekki til þess bært að skýra almennt réttarástand með því að setja almenna réttarreglu og í þessu tilviki leiðir að auki fjöldi afbrigða lánssamninga og réttarfars- og málsforræðisreglur til þess að það kunni að verða langvinnt og torsótt að ná fram skýrleika fyrir allan almenning.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×