Glitnir stofnar dótturfélag í Lúxemborg 11. ágúst 2010 16:43 Árni Tómasson er formaður skilanefndar Glitnis.
Glitnir í Lúxemborg hefur stofnað dótturfélagið Reviva Capital til að annast umsýslu og reksturs eignasafns bankans. Reviva Capital hefur hlotið starfsleyfi frá yfirvöldum og fjármálaeftirliti Lúxemborgar til að annast innheimtu- og eignaumsýslustarfsemi og hyggst félagið jafnframt bjóða öðrum aðilum þjónustu sína. Hjá Reviva Capital starfa átján starfsmenn, þar af níu Íslendingar. Stjórnendur og lykilstarfsmenn Glitnis í Lúxemborg eiga 10% hlut í félaginu sem að öðru leyti er í eigu Glitnis í Lúxemborg. Eignarhlutur starfsmanna er skilyrtur og tengdur markmiðum félagsins til lengri tíma. „Fyrir Reviva Capital liggur það flókna langtímaverkefni að hámarka verðmæti eignasafns Glitnis í Lúxemborg. Til að það megi takast er mikilvægt að það ríki stöðugleiki og langtímahugsun og með það að leiðarljósi studdi skilanefnd Glitnis stofnun félagsins heilshugar. Sá hópur sem leiðir félagið hefur staðið vel að verki við fjárhagslega endurskipulagningu bankans frá hruni og notið trausts yfirvalda og kröfuhafa í Lúxemborg, en Seðlabanki Lúxemborgar er stærsti kröfuhafinn," segir Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, í tilkynningu til fjölmiðla. Reviva Capital hefur gert þjónustusamning við slitastjóra Glitnis í Lúxemborg um rekstur eignasafns Glitnis sem er að mestu lán til Evrópskra fasteignafélaga og eru eignir bankans að stærstum hluta í Þýskalandi, á Norðurlöndum og í Bretlandi.
Mest lesið Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Viðskipti innlent Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Viðskipti innlent Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Atvinnulíf Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Viðskipti innlent Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Viðskipti innlent Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Viðskipti innlent Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Viðskipti innlent Íslendingar borgi 55 prósent meira fyrir matvöru Neytendur Fjárfestu í karllægum félögum og báðu síðan um fund með forstjóranum Atvinnulíf Fleiri fréttir Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Sjá meira