Vill sérstakan bankaskatt 10. júní 2010 13:12 Magnús Orri Schram. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, segir stjórnvöld þurfa að brúa gríðarlega stórt fjárlagagat. Hann vill að settur verði tekjuskattur á fjármálastofnanir eða það sem hann kallar bankaskatt. Undanfarin ár hafi Íslendingar einkavætt hagnað fjármálatofnanna en ríkisvætt tap þeirra. Magnús telur brýnt að þessari þróun verði snúið við. Í umræðum á Alþingi í dag benti Magnús á að í fyrra hafi hagnaður Arionbanka, Landsbanka og Glitnir verið samtals 51 milljarður króna og að arðsemi eignafjár þeirra hafi verið allt að 30%. „Þetta er á tímum þar sem stjórnvöld eiga í hatramri baráttu við bankastofnanir um að þær komi til móts við skuldara um frekari aðstoð við skuldug heimili. Þetta er á þeim tímum sem við horfum fram á niðurskurð í þjónustu við aldraðra, og fatlaða, skerðingu á bótum og þjónustu. Og kannski hvað alvarlegast að mati sumra, skerðingu á þjónustu við ráðherra," sagði Magnús. Til að brúa fjárlagagatið þarf meðal annars að skera niður í útgjöldum ríkissjóð með sameiningu eða niðurlagningu ráðuneyta, að mati Magnúsar. Hann er á móti frekari skatthækkunum á heimili. „Frá árinu 2003 höfum við Íslendingar einkavætt hagnað fjármálastofnanna en ríkisvætt tap þeirra. Ég legg til að þessari þróun verði snúið við og lýsi mig fylgjandi innleiðingu bankaskatts á þær bankastofnanir sem sýna svo umtalsverðan hagnað. Þær verða að leggja sitt af mörkum við endurreisnina og hjálpa okkur að ná upp í fjárlagagatið því við erum komin að sársaukamörkum í niðurskurði. Sérstaklega ef menn ætla að ríghalda í ráðherrastóla," sagði Magnús.
Mest lesið Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Sjá meira