Matvara og drykkir kynda undir verðbólguna 29. apríl 2010 12:03 Er þar fyrst og fremst um að ræða hækkun á innlendri framleiðslu, sér í lagi grænmeti sem hækkar um ríflega 12% frá marsmánuði.
1% hækkun matvöru og drykkja er helsti hækkunarvaldurinn á bakvið verðbólgumælinguna að þessu sinni og hefur áhrif til 0,17% hækkunar á vísitölu neysluverðs (VNV). Er þar fyrst og fremst um að ræða hækkun á innlendri framleiðslu, sér í lagi grænmeti sem hækkar um ríflega 12% frá marsmánuði.Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka sem fjallar um verðbólgumælingu Hagstofunnar fyrir apríl sem birt var í morgun. Samkvæmt mælingunni lækkaði verðbólgan aðeins eða úr 8,5% og niður í 8,2%. Þessu hafði greiningin spáð nákvæmlega fyrir fyrr í mánuðinum.Alls hækka innlendar búvörur og grænmeti um 2,2% á milli mánaða á meðan innfluttar mat- og drykkjarvörur hækka um 0,4%. Þá hækkar ferða- og flutningaliður vísitölunnar um 0,5% á milli mánaða (0,07% í VNV) og skýrist sú hækkun bæði af verðhækkun nýrra bíla og hækkun á rekstrarkostnaði. Húsnæðisliður vísitölunnar hækkar um 0,23% í apríl (0,06% í VNV), fyrst og fremst vegna hækkunar á efniskostnaði við viðhald og greiddri húsaleigu.„Þróun síðarnefnda liðarins, sem vegur tæplega 3% í VNV, er raunar vægast sagt furðuleg, en hann hefur hækkað um ríflega 8% frá ársbyrjun 2009 á sama tíma og ýmsar vísbendingar eru um verulega verðlækkun á leigumarkaði á þessu tímabili. Kann það að skýrast af miklu vægi opinberra leigusamninga, s.s. stúdentaíbúða og félagslegra íbúða, í þessum lið, en slíkir samningar eru oft verðtryggðir. Reiknuð húsaleiga, sem að mestu endurspeglar markaðsverð íbúðarhúsnæðis, lækkaði hins vegar um 0,2% milli mánaða," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Sjá meira