S&P: Ísland af athugunarlista en horfur samt neikvæðar Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. mars 2010 14:45
Standard & Poor´s lækkaði í dag lánshæfismat fyrir innlendar skuldbindingar í BBB/A-3 úr BBB+/A-2. Langtíma- og skammtíma lánshæfismat fyrir erlendar skuldbindingar er hins vegar óbreytt í BBB-/A-3. „Þetta lánshæfismat sýnir það viðhorf okkar að meiri stöðugleiki er kominn á stöðu efnahagsmála til skamms tíma en var fyrst eftir að Íslendingar höfnuðu Icesave löggjöfinni í þjóðaratkvæðagreiðslu í byrjun mars," sagði Moritz Kraemer, sérfræðingur hjá S&P. S&P hefur tekið Ísland af athugunarlista en segir að horfur séu samt ennþá neikvæðar. „Horfur eru neikvæðar vegna þess að við sjáum enn hættu á dregið geti úr lánshæfi Íslands ef slitnar upp úr viðræðum um Icesave við bresk og hollensk stjórnvöld," bætti Moritz Kraemer við. „Við teljum að það myndi draga úr möguleikum Íslands hvað varðar erlenda fjármögnun, setja þrýsting á erlenda lausafjárstöðu og hamla vaxtarmöguleikum þar sem gjaldeyrishöft verða enn til staðar. Slík framvinda myndi leiða til lækkunar á lánshæfi Íslands um eitt eða tvö þrep og það sama ætti við um efnahagsstefnu sem leiddi til skarprar gengislækkunar gjaldmiðilsins. Óvænt uppnám pólitísks stöðugleika sem ógnaði getu Íslands til að bregðast við efnahagsáföllum í tíma, myndi einnig hafa neikvæð áhrif á lánshæfi landsins að okkar mati. Stöðugur og varanlegur ytri jöfnuður og trúverðug efnahagsáætlun til að snúa við háum skuldatölum ríkisins myndu halda lánshæfismati áfram í BBB flokki."
Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Live verður Lifa Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira