Viðskipti innlent

Baldur ráðinn mannauðsstjóri Landsbankans

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Baldur G. Jónsson hefur verið ráðinn mannauðsstjóri Landsbankans, samkvæmt tilkynningu frá bankanum.

Baldur lauk prófi sem sálfræðingur (cand. psyk.) frá Kaupmannahafnarháskóla 1999, BA-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands 1994 og er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík af mannauðslínu skólans.

Baldur hefur undanfarin ár gengt starfi mannauðsráðgjafa hjá Skiptum hf., móðurfélagi Símans og fleiri fyrirtækja. Baldur mun fara til starfa í Landsbankanum að hluta strax í þessum mánuði en að fullu í október






Fleiri fréttir

Sjá meira


×