Ríkið hætti stuðningi við RES Orkuskóla eða yfirtaki hann 29. október 2010 11:09
Óvissa ríkir um fjárhagslegan og faglegan rekstrargrundvöll RES Orkuskólans. Ríkisendurskoðun telur að stjórnvöld eigi um tvennt að velja: Annaðhvort að hætta stuðningi við skólann eða yfirtaka starfsemina. Brýnt er að ákvörðun verði tekin sem fyrst. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunnar sem birt er á vefsíðu hennar. Vegna óvissu í rekstri skólans mælir Ríkisendurskoðun ekki með því að ríkið semji við hann um takmarkaðan fjárstuðning í eitt ár né geri við hann langtímasamning. Að mati stofnunarinnar er mikilvægt að óvissu um framtíð skólans verði eytt eins fljótt og mögulegt er. Árið 2007 var stofnaður alþjóðlegur skóli á Akureyri til að sinna rannsóknum og kennslu á sviði endurnýjanlegra orkugjafa, RES Orkuskóli . Hann starfar í samvinnu við Háskólann á Akureyri og Háskóla Íslands sem bera faglega ábyrgð á kennslu innan hans og brautskráningu nemenda. Frá stofnun hafa á annað hundrað nemendur stundað nám við skólann, langflestir erlendir. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að upphaflega hafi staðið til að skólinn yrði að stærstum hluta í eigu einkaaðila. Þetta markmið hefur ekki náðst því stofnanir og fyrirtæki ríkisins eiga nú rúmlega helmingshlut í einkahlutafélaginu Orkuvörðum sem á og rekur skólann. Í skýrslunni segir einnig að við stofnun RES Orkuskóla hafi verið stefnt að því að starfsemin yrði að mestu leyti fjármögnuð með styrkjum og skólagjöldum. Þetta markmið hefur heldur ekki náðst því um helmingur rekstrartekna hans hefur hingað til komið beint eða óbeint frá ríkinu. Aðeins lítill hluti ríkisframlaga hefur þó byggst á formlegum samningum, eins og Ríkisendurskoðun telur að ávallt eigi að gera þegar stjórnvöld ákveða að veita fé til einkaskóla. RES Orkuskóli hefur frá upphafi verið rekinn með tapi, skuldir hans eru miklar og eiginfjárstaða orðin neikvæð. Það eykur enn á fjárhagsvanda skólans að í lok þessa árs mun styrkur sem runnið hefur til hans úr Þróunarsjóði EFTA falla niður en hann hefur verið um þriðjungur tekna skólans frá upphafi. Að mati Ríkisendurskoðunar er fjárhagslegur grundvöllur skólans afar veikur og óvíst að hann sé rekstrarhæfur. Forsvarsmenn RES Orkuskóla telja mögulegt að tryggja rekstur skólans til næstu ára og hafa lagt fram áætlun um hvernig það verði gert. Að mati Ríkisendurskoðunar byggir áætlunin á ótryggum forsendum og væntingum sem óvíst er hvort gangi eftir. Ríkisendurskoðun telur að stjórnvöld þurfi að taka skjóta en vel ígrundaða ákvörðun um framtíð RES Orkuskóla. Í því efni er í raun aðeins um tvennt að velja að mati stofnunarinnar: Annaðhvort að ríkið hætti stuðningi sínum við skólann, sem þýddi líklega að hann legðist af, eða yfirtaki starfsemina og leggi hana undir Háskólann á Akureyri og/eða Háskóla Íslands.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira