Hagkerfið finnur botn kreppunnar á næstu mánuðum 6. desember 2010 11:58
Reikna má með því að hagkerfið finni botn kreppunnar á næstu mánuðum og að við taki hægfara bati, að því er segir í nýrri hagspá greiningar Íslandsbanka. Greiningin gerir ráð fyrir 0,9% hagvexti á næsta ári og 2,9% hagvexti árið 2012. Fjallað er um hagspánna í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að skilyrði fyrir vexti hafa skapast að nýju eftir mikla leiðréttingu í eigna, skulda, tekju og gjaldahlið þjóðarbúsins. Ólíklegt er að viðsnúningurinn verði hraður sökum margra kerfislægra vandamála sem enn eru til staðar. Má þar nefna skuldavanda fyrirtækja, heimila og hins opinbera, skort á virkum fjármálamarkaði og trausti. Afleiðingar fjármálakreppunnar munu því lita efnahagsþróunina talsvert fram yfir þann tímapunkt þegar botni kreppunnar er náð. „Reiknum við með því að hagvöxtur mælist 0,9% á næsta ári, knúinn áfram af aukinni neyslu, fjárfestingu og útflutningi. Lágt raungengi og aukinn hagvöxtur á heimsvísu hjálpar útflutningnum á meðan aukin erlend fjárfesting hér á landi, vaxandi kaupmáttur og lægri vextir hvetja innlenda eftirspurn. Lítill vöxtur verður að öllum líkingum í öllum þessum liðum og viðsnúningurinn vart sýnilegur svo neinu nemur fyrr en á árinu 2012, en við spáum 2,9% hagvexti það ár og 3,3% hagvexti 2013," segir í Morgunkorninu. Eftir að samdrátturinn í einkaneyslu sem staðið hafði yfir frá 2008 virtist ætla að taka enda um mitt þetta ár hefur viðvarandi óvissa um skuldastöðu heimilanna tafið viðsnúninginn a.m.k. tímabundið. Vaxandi kaupmáttur, lækkun vaxta, bætt staða vinnumarkaðarins auk hækkunar eignaverðs skapar skilyrði fyrir aukningu einkaneyslu þegar líða tekur á næsta ár. „Viðbúið er að vöxturinn verði hægur og að hann byggist minna á skuldsettum vexti og eignaverðshækkunum en hefur verið raunin í mörgum öðrum uppsveiflum í íslensku efnahagslífi. Reiknum við með því að einkaneyslan vaxi um 2,5% á næsta ári, kaupmáttur launa um 0,1% og að atvinnuleysi lækki úr 8,1% á þessu ári niður í 7,5% á næsta ári. Einnig reiknum við með 0,8% raunverðshækkun íbúðarhúsnæðis," segir í Morgunkorninu. Þá segir að fjárfestingarstigið í hagkerfinu sé afar lágt um þessar mundir en vel þekkt er að það sé lágt um hríð eftir að hagkerfi hafa orðið fyrir gjaldeyris- og bankakreppu. Mikil skuldsetning, hægur vöxtur innlendrar eftirspurnar, seinagangur í fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækja og heimila sem og höft á gjaldeyrismarkaði draga úr vaxtamöguleikum á þessu sviði efnahagslífsins á næstunni. „Fjárfestingarstig sem er talsvert yfir núverandi stigi er nauðsynlegt til að halda hagvexti viðunandi litið til lengri tíma. Reiknum við með því að fjárfesting vaxi um 4,4% á næsta ári, aðallega vegna fjárfestinga í stóriðju og tengdri starfsemi. Þegar kemur fram á árið 2013 reiknum við hins vegar með hagstæðari skilyrðum og að fjárfesting taki öll við sér, þ.e. fjárfesting atvinnuveganna, heimilanna og hins opinbera," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Viðskipti innlent Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Viðskipti innlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Festa og Gildi vilja sameinast Viðskipti innlent Spá örlítilli hjöðnun verðbólgu Neytendur Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Sjá meira