Landbúnaðaráðuneytið keypti bankabréf í Kaupþingi 6. desember 2010 14:52 Guðni Ágústsson var landbúnaðarráðherra árið 2005.
Landbúnaðarráðuneytið notaði hagnað sem fékkst af sölunni á Lánasjóði landbúnaðarins árið 2005 til þess að kaupa bankabréf í Kaupþingi. Eðlilegt hefði verið að skila þessu fé til ríkisféhirðis að mati Ríkisendurskoðunnar. Féð er glatað að stórum hluta. Fjallað er um málið í skýrslu Ríkisendurskoðunnar um ríkisreikning fyrir árið 2009. Þar segir að landbúnaðarráðuneytið (nú sjávarútvegs‐ og landbúnaðarráðuneyti) seldi Lánasjóði landbúnaðarins árið 2005. Kaupandinn var Landsbanki Íslands hf. Ráðuneytið ráðstafaði handbæru fé sem fékkst við söluna, samtals 214,2 milljónir kr., til kaupa á svokölluðum bankabréfum í stað þess að skila því til ríkisféhirðis. „Í stað þess að skila ríkisféhirði handbæra fénu ákvað landbúnaðarráðuneytið (nú sjávarútvegs‐ og landbúnaðarráðuneyti) að ávaxta það með því að kaupa svokölluð bankabréf hjá Kaupþingi banka hf. Ráðuneytið tók ákvörðun um ávöxtun og ávöxtunarleiðir. Við hrun Kaupþings í október 2008 var þessi krafa skilgreind sem almenn viðskiptakrafa en ekki inneign sem hefði þá verið varin af neyðarlögunum sem sett voru haustið 2008. Í lok október s.l. samþykkti slitastjórn Kaupþings kröfuna að stærstum hluta og eru nú líkur á að 20-30% hennar verði endurheimt. Ríkisendurskoðun gerir alvarlega athugasemd við ákvörðun ráðuneytisins um að kaupa umrædd bréf fyrir féð sem fékkst við sölu Lánasjóðs landbúnaðarins. Að mati stofnunarinnar er nauðsynlegt að setja skýrar og samræmdar reglur um eignaumsýslu ríkissjóðs og heimildir einstakra ráðuneyta til að ráðstafa eignum hans. Þess má geta að í fjáraukalögum fyrir árið 2006 var samþykkt 330 milljón kr. fjárveiting til byggingar reiðhalla, reiðskemma og reiðskála. Í frumvarpi til laganna sagði að framlagið yrði fjármagnað með fjármunum sem eftir stóðu við sölu og niðurlagningu Lánasjóðs landbúnaðarins. Á þessum tíma virðist ekki hafa verið kannað hvar þessir fjármunir voru niðurkomnir.
Tengdar fréttir Fjöldi ríkisstofnanna hundsaði tilmæli um launalækkun Nær fjórar af hverjum tíu ríkisstofnunum hundsuðu tilmæli ríkisstjórnarinnar sumarið 2009 um að lækka laun þeirra starfsmanna sinna sem voru með yfir 400 þúsund kr. í mánaðarlaun. 6. desember 2010 14:35 Ríkisendurskoðun: Ámælisvert að færa ekki björgun Sjóvár til bókar Ríkisendurskoðun hefur óskað eftir því við fjármálaráðuneytið að það geri grein fyrir þeirri lagaheimild sem byggt var á við ákvörðun um eiginfjárframlag ríkisins til SAT eignarhaldsfélags hf., sem er í eigu ríksins, vegna björgunaraðgerða handa Sjóvá eftir hrun. Ríkið reiddi fram 11,6 milljarða til þess að koma í veg fyrir gjaldþrot Sjóvár. 6. desember 2010 14:48 Hörð gagnrýni á reikningsskil og fjármálastjórn ríkisins Ríkisendurskoðun hefur sett fram harða gagnrýni á reikningsskil og fjármálastjórn ríkisins. Gagnrýnt er að ekki skuli getið um tilteknar skuldbindingar í ríkisreikningi. Athugasemd er gerð við ráðstöfun fjár sem fékkst við sölu Lánasjóðs landbúnaðarins og að ekki sé ljóst á hvaða lagaheimild framlag til endurreisnar Sjóvár byggðist svo dæmi séu tekin. 6. desember 2010 14:13 Mest lesið Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Neytendur Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst enn Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Starbucks kemur í stað Kaffitárs Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira
Fjöldi ríkisstofnanna hundsaði tilmæli um launalækkun Nær fjórar af hverjum tíu ríkisstofnunum hundsuðu tilmæli ríkisstjórnarinnar sumarið 2009 um að lækka laun þeirra starfsmanna sinna sem voru með yfir 400 þúsund kr. í mánaðarlaun. 6. desember 2010 14:35
Ríkisendurskoðun: Ámælisvert að færa ekki björgun Sjóvár til bókar Ríkisendurskoðun hefur óskað eftir því við fjármálaráðuneytið að það geri grein fyrir þeirri lagaheimild sem byggt var á við ákvörðun um eiginfjárframlag ríkisins til SAT eignarhaldsfélags hf., sem er í eigu ríksins, vegna björgunaraðgerða handa Sjóvá eftir hrun. Ríkið reiddi fram 11,6 milljarða til þess að koma í veg fyrir gjaldþrot Sjóvár. 6. desember 2010 14:48
Hörð gagnrýni á reikningsskil og fjármálastjórn ríkisins Ríkisendurskoðun hefur sett fram harða gagnrýni á reikningsskil og fjármálastjórn ríkisins. Gagnrýnt er að ekki skuli getið um tilteknar skuldbindingar í ríkisreikningi. Athugasemd er gerð við ráðstöfun fjár sem fékkst við sölu Lánasjóðs landbúnaðarins og að ekki sé ljóst á hvaða lagaheimild framlag til endurreisnar Sjóvár byggðist svo dæmi séu tekin. 6. desember 2010 14:13
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent