Viðskipti innlent

Áætlaðar afskriftir lána koma við kaunin á ÍLS

Þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa boðað til í skuldavanda heimilanna munu hafa áhrif á áætlaðar afskriftir og þar með eiginfjárþörf Íbúðalánasjóðs (ÍLS). Þetta kemur fram í tilkynningu frá sjóðnum til Kauphallarinnar.

Tilkynningin hljóðar svo: „Breytingatillögur við frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2010 eru nú til umræðu í fjárlaganefnd Alþingis, sem og í félags- og tryggingamálanefnd. Í frumvarpinu er m.a. heimilað að efla eiginfjárstöðu Íbúðalánasjóðs um allt að 33 milljarða króna. Með því er stefnt að því að eiginfjárstaða sjóðsins geti orðið allt að 5% af áhættugrunni sjóðsins við árslok 2011.

Þessi eiginfjáraukning sjóðsins er í samræmi við viljayfirlýsingu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins og stjórnvalda frá september 2010, en þar er gert ráð fyrir að eiginfjáraukningu til Íbúðalánasjóðs verði lokið fyrir árslok 2010.

Eigið fé sjóðsins skv. árshlutauppgjöri 2010 var jákvætt um 8,4 milljarða króna sem þýðir að eiginfjárhlutfall hans var 2,1%, en langtímamarkmið sjóðsins er að hafa hlutfallið yfir 5%.

Til að ná langtímamarkmiði sínu um 5% eiginfjárhlutfall í árslok 2011 er ljóst að ríkissjóður þarf að leggja Íbúðalánasjóði til aukið eigið fé. Sem stendur er verið að undirbúa aðgerðir til aðstoðar þeim heimilum í landinu sem eru í greiðsluerfiðleikum. Þessar aðgerðir munu hafa áhrif á áætlaðar afskriftir lána og þar með á eiginfjárþörf sjóðsins."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×