Þeir sem forrituðu Icesave gera það gott í Hollandi Þorbjörn Þórðarson. skrifar 6. desember 2010 19:09
Hollenskt fyrirtæki sem ætlar sér stóra hluti í netbankaheiminum hefur ráðið til sín íslenska forritara hjá Landsbankanum sem hönnuðu Icesave til að selja netbankalausnir eins og Icesave til erlendra banka. Hollenska fyrirtækið FiveDegrees sérhæfir sig í lausnum fyrir erlenda banka. Fyrirtækið hyggst selja erlendum fyrirtækjum ýmsar netbankalausnir, eins og söfnun innlána á netinu, sambærilegar Icesave og einkabankalausnir sambærilegar þeim sem íslenskir bankar bjóða upp á. Hugmyndin um söfnun innlána á netinu fæddist ekki hjá Landsbankanum með Icesave því mörg önnur fyrirtæki höfðu rutt brautina en Landsbankinn náði miklum árangri því hugmyndin var sérstaklega vel útfærð. Og nú hefur hollenska fyrirtækið FiveDegrees ráðið fimm íslenska sérfræðinga, þar af þrjá sem áður unnu sem forritarar hjá Landsbankanum til að hanna og þróa netbankalausnir til að selja erlendum bönkum. Meðal verkefna forritaranna sem unnu hjá Landsbankanum var forritun fyrir afurðir Landsbankans eins og Icesave. Björn Hólmþórsson einn stofnenda FiveDegrees og var áður yfirmaður tölvudeildar hjá Landsbankanum sagði í samtali við fréttastofu í dag að Icesave hafi verið fyrsti innlánsreikningurinn í Hollandi með fullkomlega rafræn og pappírsslaus viðskipti. Í dag væru flestir sem byðu upp á netbanka með innlánssöfnun að styðjast við sambærilegt fyrirkomulag þar í landi. FiveDegrees er meðal annars að vinna fyrir hollenska banka sem voru í samkeppni við Icesave í Hollandi fyrir bankahrunið. Verið er að setja á laggirnar nýjan banka þar í landi á næsta ári og verður kerfi frá FiveDegrees notað við rekstur hans.
Mest lesið Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Viðskipti innlent 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Viðskipti innlent Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Viðskipti erlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga Viðskipti erlent Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Viðskipti innlent Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Viðskipti innlent Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Sjá meira