Viðskipti innlent

Bankastjóri Landsbankans: Bjóst við pólitískum afskiptum

Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir að nánast engin samskipti séu á milli hans og fjármálaráðherra.

„Bankasýslan fer með eigendahlut. Auðvitað hitti ég Steingrím á fundum en það eru engin þannig atriði. Þegar ég kom inn í bankann átti ég von á að fá símtöl endrum og sinnum frá stjórnmálamönnum af því maður hafði heyrt áður fyrr sérstaklega að það væri þannig í ríkisbönkum, en sem betur fer hef ég ekki fengið nein slík símtöl"

Steinþór var í ítarlegu viðtali við Sigríði Mogensen i Íslandi í dag í gærkvöldi. Hægt er að hlusta á viðtalið með því að smella á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt








Fleiri fréttir

Sjá meira


×