Exeter-málið: Segir ólöglegum hlerunum hafa verið beitt Valur Grettisson skrifar 3. nóvember 2010 11:43 Sakborningar í Exeter-málinu. Styrmir er til vinstri ásamt lögmanni sínum og Jón Þorsteinn er til hægri ásamt lögmanni.
Aðeins einn sakborningur af þremur mætti í Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun þar sem frávísunarkrafa í svokölluðu Exeter-máli var tekin fyrir. Það var fyrrverandi forstjóri MP banka sem mætti, Styrmir Þór Bragason. Málið snýst um 1,1 milljarðs króna lán sem Byr veitti Exeter Holding á seinni hluta ársins 2008. Lánið var notað til þess að kaupa stofnfjárbréf af MP banka og stjórnarmönnum Byrs, Jóni Þorsteini Jónssyni og Birgi Ómari Haraldssyni, á yfirverði. Jón Þorsteinn, sem er fyrrverandi stjórnarformaður Byrs, og Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi forstjóri Byrs, eru ákærðir fyrir umboðssvik. Styrmir Þór er að auki ákærður fyrir peningaþvætti. Allir hafa þeir neitað sök. Meðal þess sem fram kom í máli verjanda hinna ákærðu var hörð gagnrýni á víðtækar rannsóknarheimildir embættis sérstaks saksóknara. Meðal annars var sérstaklega sett út á heimild til þess að hlera síma Styrmis. Heimildin var engu að síður samþykkt af Héraðsdómi Reykjavíkur. Verjandi Styrmis sagði það hlyti að skrifast á reynsluleysi dómarans sem heimilaði hlerunina, en að hans sögn má ekki hlera síma nema viðurlög við meintu broti varði 8 ár. Í tilfelli Styrmis gæti brot hans varðað allt að sex ára fangelsi. Í rökstuðningi fyrir hleruninni var borið við brýnum almannahagsmunum. Þessu hafnaði verjandi Styrmis og sagði enga brýna almannahagsmuni eiga við í þessu tilfelli. Verjendur vildu einnig meina að embætti sérstaks saksóknar hefði alls ekki heimild til þess að rétta í málinu. Meðal þess sem þeir lögðu fram var bréf Ákærendafélagsins, sem formaður þess ritaði, sem er Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrverandi saksóknari efnahagsbrotadeildarinnar. Hann starfar nú sem saksóknari Alþingis vegna Landsdóms. Í bréfinu kom fram gagnrýni á embættið en það var stílað á Alþingi. Þar sagði meðal annars að það væri óljóst hvenær mál heyrðu undir sérstakan saksóknara og svo efnahagsbrotadeild. Þá vakti athygli að varaformaður Ákærandafélagsins er sérstakur saksóknari, Ólafur Þór Þór Hauksson. Einnig var lagt fram bréf ríkissaksóknara, Valtýs Sigurðssonar, til embætti sérstaks saksóknara. Í því kemur fram það sjónarmið að embætti sérstaks saksóknara gæti ekki höfðað mál á hendur aðilum vegna þröngra skorða í lögum um embættið. Settur saksóknari sagði Valtý hreinlega fara með rangt mál. Sjónarmið hans væri lögvilla. Verjendur gagnrýndu einnig harðlega framgöngu og aðkomu Evu Joly hjá embættinu. Sögðu þeir hana hafa einnhverskonar alræðisvald sem ríkisstjórn Íslands hefði hlýtt í einu og öllu. Þar af leiðandi væri réttaröryggi í raun ógnað. Var vitnað til fjölmiðlaviðtala við Evu og viðbragða stjórnvalda vegna athugasemda sem hún hefur sett fram. Settur saksóknari, Björn Þorvaldsson, sem hafnaði öllum frávísunarkröfunum, sagði um Evu að hún hefði aldrei komið að neinum ákvarðantökum embættisins né hafði hún nokkurntímann tjáð sig um þetta mál. Því væri það fjarri lagi að ætla að hún hefði með einhverjum hætti haft áhrif á rannsóknina. Úrskurður verður svo lagður í dóm í dag og má búast við niðurstöðu innan nokkurra vikna.
Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira