10-11 verslanirnar seldar Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. september 2010 16:02 Verslanir 10-11 eru 23 talsins. Mynd/ Róbert.
Ákveðið hefur verið að færa rekstrarfélag 10-11 út úr Hagasamstæðunni og selja það í opnu söluferli. Undirbúningur er þegar hafinn að sölu 10-11 verslananna og gert er ráð fyrir að fyrirtækið fari í sölu á næstu mánuðum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Arion banka. Í tilkynningunni kemur fram að með þessum breytingum fækki matvöruverslunum í eigu Haga um röskan þriðjung. Eignabjarg ehf., eignarhaldsfélag Arion banka sem fer með eignarhlut bankans í Högum, hefur falið fyrirtækjaráðgjöf bankans að hefja undirbúning að sölu á öllum hlutum eignarhaldsfélagsins í rekstrarfélagi 10-11. Unnið er að aðskilnaði félagsins frá Hagasamstæðunni og gert er ráð fyrir að tilkynnt verði um endanlega tilhögun og framkvæmd söluferlis á næstu vikum. Verslanir 10-11 hafa verið starfræktar frá árinu 1991 og verið hluti af Hagasamstæðunni frá árinu 1999. Nú eru reknar 23 verslanir undir nafni 10-11 víðsvegar um höfuðborgarsvæðið, í Reykjanesbæ og á Akureyri og starfa þar samtals um 230 starfsmenn. Verslanir 10-11 eru opnar allan sólarhringinn og þar er lögð áhersla á einfalda og fljótlega verslun. Vörumerkið 10-11 er sterkt og verslanir félagsins vel staðsettar. Að undanförnu hefur bankinn orðið þess áskynja að mikill áhugi er á félaginu. Eykur samkeppni á markaði Í sátt Samkeppniseftirlitsins og Arion banka, sem gerð var í kjölfar yfirtöku bankans á Högum, beinir Samkeppniseftirlitið þeim tilmælum til bankans að kanna möguleika á því að selja Haga í fleiri en einum hluta í því skyni að auka samkeppni. Jafnframt kemur fram að tilmælunum sé ekki ætlað að víkja til hliðar augljósum hagsmunum af því að hámarka verðmæti og tryggja hagsmuni bankans. Í tilkynningu frá Arion banka segir að með sölu á 10-11 verslunum Haga sé ætlunin meðal annars að dreifa eignarhaldi á matvörumarkaði. Fleiri aðilum gefist nú kostur á að láta að sér kveða á þeim vettvangi en verið hefur. Þannig sé bankinn að koma til móts við sjónarmið samkeppni án þess að fórna fjárhagslegum hagsmunum. Hlutdeild 10-11 í matvöruveltu Haga er tæp 7%. Eftir söluna á 10-11 fækkar matvöruverslunum Haga úr 61 í 38.
Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Allri stjórn Landsvirkjunar skipt út Viðskipti innlent Fjörutíu missa vinnuna hjá Tölvuteki Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira