Nefnd um fjármálastöðugleika skipuð 16. ágúst 2010 17:16 Forsætisráðuneytið.
Forsætisráðherra, fjármálaráðherra, efnahags- og viðskiptaráðherra, seðlabankastjóri og forstjóri Fjármálaeftirlitsins undirrituðu þann 6. júlí s.l. samkomulag um skipun nefndar um fjármálastöðugleika samkvæmt tilkynningu frá efnahags- og viðskiptaráðuneytinu. Að grunni til byggir samkomulagið og starf nefndarinnar á fyrra samkomulagi ráðuneytanna og stofnananna frá árinu 2006 um samráð varðandi fjármálastöðugleika og viðbúnað. Nefnd um fjármálastöðugleika skal vera vettvangur samráðs, upplýsingaskipta og tillagnagerðar vegna fjármálastöðugleika og samhæfingar viðbúnaðar við hugsanlegu fjármálaáfalli. Þá er nefndinni ætlað að stuðla að gagnsæi um verkaskiptingu milli aðila sem og samvinnu þeirra á milli. Nefndin er ráðgefandi og tekur ekki ákvarðanir um aðgerðir en skal þó gera tillögur að aðgerðum þegar þurfa þykir. Samkomulagið hefur þannig engin áhrif á ábyrgð aðila á málaflokkum sínum, né kemur í veg fyrir að þeir taki ákvarðanir í samræmi við heimildir sínar, hver á sínu sviði. Nefndin fjallar m.a. um stöðu og horfur á fjármálamörkuðum, samráð og aðgerðir stjórnvalda vegna hugsanlegra fjármálaáfalla, breytingar á lögum, reglum og starfsháttum er varða verksvið nefndarinnar og þróun og breytingar í alþjóðlegu samstarfi, sérstaklega innan EES. Nefndin getur staðið að og tekið þátt í viðlagaæfingum vegna hugsanlegra áfalla á fjármálamarkaði. Hún skal einnig sinna samstarfi Norðurlanda og annarra Evrópuríkja vegna hugsanlegs fjármálaáfalls, sem s.n. „Domestic Standing Group" íslenskra stjórnvalda. Í nefndinni sitja fulltrúar efnahags- og viðskiptaráðuneytis, forsætisráðuneytis, fjármálaráðuneytis, Fjármálaeftirlits og Seðlabanka Íslands. Fulltrúi efnahags- og viðskiptaráðuneytis er formaður nefndarinnar og stýrir starfi hennar.
Mest lesið Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Viðskipti innlent Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Viðskipti innlent Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Atvinnulíf Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Viðskipti innlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Viðskipti innlent Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Viðskipti innlent Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Viðskipti innlent Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Samstarf Fleiri fréttir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Sjá meira