Viðskipti innlent

Neysluútgjöld heimila hátt í hálf milljón á mánuði

Neysluútgjöld á heimili árin 2007-2009 voru 456 þúsund krónur á mánuði og hækkuðu um 7,0% frá tímabilinu 2006-2008. Á sama tíma hefur meðalstærð heimilis minnkað úr 2,39 einstaklingum í 2,37 og hafa útgjöld á mann því hækkað um 7,9% og eru nú 192 þúsund krónur.

Vísitala neysluverðs hækkaði um 12,0% á sama tímabili og hafa heimilisútgjöldin því dregist saman um 4,8% að teknu tilliti til verðbreytinga eða um 4,0% á mann.

Þetta kemur fram í Hagtíðindum um niðurstöður úr rannsókn á útgjöldum heimilanna árin 2007-2009 og birt er á vefsíðu Hagstofunnar. Niðurstöður eru sundurliðaðar eftir búsetu, heimilisgerð, tekju- og útgjaldahópum. Heildarniðurstöður eru bornar saman við útgjaldarannsóknina 2006-2008. Þá er sagt frá sérstakri athugun á breytingum á neyslu í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008.

Ráðstöfunartekjur meðalheimilisins í rannsókninni voru um 490 þúsund krónur á mánuði, um 206 þúsund krónur á mann. Ráðstöfunartekjur flestra hópa voru hærri en útgjöld þeirra en neysluútgjöldin voru að meðaltali um 93% af ráðstöfunartekjum.

Töluverður samdráttur neysluútgjalda varð í kjölfar efnahagshrunsins haustið 2008. Meðalútgjöld árið 2008 voru 8% lægri en árið 2007 og drógust aftur saman um 13,4% milli 2008 og 2009. Þannig voru útgjöldin 20% lægri árið 2009 en þau voru árið 2007.

Í úrtaki voru 3.484 heimili, 1.850 þeirra tóku þátt í rannsókninni og var svörun því rúm 53%.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×