Viðskipti innlent

Þessi kynnu að eiga erindi í Kauphöllina

Í Kauphöllinni Magne Arge, forstjóri Atlantic Airways og Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, við skráningu Atlantic Airways á markað hér á landi undir árslok 2007.
Í Kauphöllinni Magne Arge, forstjóri Atlantic Airways og Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, við skráningu Atlantic Airways á markað hér á landi undir árslok 2007. Markaðurinn/Vilhelm

Félögum í Kauphöllinni (Nasdaq OMX Iceland) hefur fækkað verulega og varð náttúrulega mesta blóðtakan með falli bankanna haustið 2008. Núna eru einungis níu fyrirtæki skráð á aðallista Kauphallarinnar og þrjú eru skráð á First North-markaðinn. Af félögum á aðallista eru fjögur færeysk: Føroya Banki, Eik Banki, Atlantic Airways og Atlantic Petroleum. Íslensku fyrirtækin eru svo Icelandair Group, Marel, Nýherji, Sláturfélag Suðurlands og Össur.

Það er hins vegar ekki svo að hér á landi sé ekki að finna fyrirtæki tæk á markað. Allmargir telja raunar að hér sé að finna fjölda fyrirtækja sem bæði gætu haft af því hag að sækja fjármögnun á markað og fjárfestar kynnu að hafa áhuga á. Eitt slíkt fyrirtæki hefur þegar upplýst um fyrirætlan sína um skráningu en það er nýsköpunarfyrirtækið Marorka, sem hannar og framleiðir orkusparandi búnað fyrir skip.

Hér fer á eftir listi yfir fyrirtæki sem kynnu að koma upp í hugann þegar velt er upp kostum hér innanlands sem erindi kynnu að eiga í endurreista Kauphöll. Taka ber fram að listinn er ekki tæmandi og segir ekkert um áhuga aðstandenda þessara fyrirtækja á því að leita skráningar:

66° Norður - framleiðandi útivistar- og vinnufatnaðar.

Arion Banki - banka- og fjármálaþjónusta á landsvísu.

Brim - útgerðarfélag með starfsemi víða um land.

CCP - hugbúnaðarfyrirtæki sem vinnur að þróun og framleiðslu tölvuleikja.

Eimskip - flutningafyrirtæki með starfsemi heima og erlendis.

Hagar - verslunarfyrirtæki með fjölda verslana (m.a. Bónus og Hagkaup).

Icelandic Group - samstæða fyrirtækja í framleiðslu og sölu sjávarafurða.

Íslandsbanki - sinnir banka- og fjármálaþjónustu á landsvísu.

Jarðboranir - sérhæft fyrirtæki á sviði jarðhitanýtingar.

Landsbankinn - sinnir banka- og fjármálaþjónustu á landsvísu.

MP Banki - banka- og fjármálaþjónustufyrirtæki með höfuðstöðvar í Reykjavík.

Promens - framleiðslufyrirtæki í plastiðnaði með starfsemi víða um heim.

Fasteignafélagið Reitir - þjónustufyrirtæki sem leigir út atvinnuhúsnæði.

Skeljungur - olíufélag með þjónustu- og verslunarrekstur um land allt.

Vodafone - fjarskipta- og símafyrirtæki með starfsemi um land allt.

Samherji - flutningafyrirtæki með starfsemi heima og erlendis.

Síminn - fjarskipta- og símafyrirtæki með starfsemi um allt land.

Sjóvá - Sjóvá-Almennar líftryggingar, tryggingafélag með starfsemi um land allt.

TM - Tryggingamiðstöðin er tryggingafélag með starfsemi um land allt.

Valitor - þjónustufyrirtæki á sviði greiðslumiðlunar.

VÍS - Vátryggingafélag Íslands, stærsta tryggingafélag landsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×