Bókhald Byrs til rannsóknar Þorbjörn Þórðarson skrifar 14. október 2010 12:14
Búið er að ráða fjármálarannsóknarteymi frá PricwaterhouseCoopers til að rannsaka bókhald Byrs, en teymið mun gera úttektir á athöfnum og gjörningum fyrrum stjórnenda og stjórnarmanna í Byr sparisjóði. Rannsóknin sem fjármálarannsóknarteymið frá PricewaterhouseCoopers mun ráðast í á starfsemi Byrs fyrir bankahrunið verður af svipuðum meiði og rannsókn Kroll á Glitni banka fyrir hrun, en Viðskiptablaðið greinir frá þessu í dag. Rannsókn Kroll hefur sem kunnugt er þegar skilað því að að slitastjórn Glitnis hefur höfðað á annan tug skaðabótamála, en þeirra stærst er málshöfðun gegn Jóni Ásgeir Jóhannessyni og fleirum í New York. Vinna Kroll var þó ekki gallalaus, því látið var í veðri vaka í eiðsvarinni yfirlýsingu formanns slitastjórnar Glitnis fyrir breskum dómstólum að innstæður sem tilheyrðu í raun Iceland Foods væru vísbending um að miklum fjármunum hefði verið skotið undan. Sú ályktun var dregin af vinnu Kroll, en reyndist fullkomlega haldlaus. Á grundvelli vinnu Kroll höfðaði þrotabú Glitnis síðan mál gegn PricewaterhouseCoopers, sama fyrirtæki og ætlar nú að rannsaka Byr, fyrir að greiða fyrir og taka þátt í að dylja þau „sviksamlegu viðskipti" eins og slitastjórn Glitnis orðar það, sem að endingu leiddu til falls Glitnis í október 2008. Eins og fréttastofa Stöðvar 2 greindi frá á laugardag eru tvær leiðir taldar heppilegar fyrir framtíð Byrs hf., hlutafélagsins sem stofnað var á rústum Byrs sparisjóðs. Annars vegar verður hlutafélagið selt í einu lagi innanlands, en bæði Landsbankinn og Íslandsbanki hafa sýnt áhuga, eða fyrirtækið verður afhent kröfuhöfum Byrs sparisjóðs, gamla Byrs. Þeirra stærstir eru þýskir bankar eins og Bayerische Landesbank og HSH Nordbank og austurríski bankinn RZB. Stofnefnahagsreikningur Byrs hf. hefur ekki verið birtur, en Viðskiptablaðið greinir frá því í dag að hann verði 160 milljarðar króna og þar af verða útlán 126 milljarða króna virði.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira