Straumur hefur yfirtekið Copenhagen Towers í Örestad 14. október 2010 08:02
Fjárfestingarsjóðurinn ALMC, áður Straumur, hefur yfirtekið fasteignaverkefnið Copenhagen Towers í Örestad í Kaupmannahöfn. Nafni Straums var breytt í ALMC eftir endurskipulagningu bankans en meðal eigenda sjóðsins auk Straums eru Goldman Sachs, Deutsche Bank og Bayerische Landesbank. Copenhagen Towers verkefnið var upphaflega á vegum Sjælsö Gruppen, stærsta fasteignafélags Danmerkur, en Björgólfsfeðgar voru meðal fyrrum aðaleigenda þess fyrir hrunið haustið 2008. Um er að ræða byggingu á tveimur háhýsum sem eru meðal hæstu bygginga í Danmörku. Önnur byggingin hýsir m.a. hótelið Crowne Plaza sem verið hefur í rekstri í tæpt ár. Hin byggingin er skrifstofuhúsnæði. Samanlagt er um nær 60.000 fm að ræða. Dansk Industri er þegar með hluta af skrifstofuhúsnæðinu til leigu en eftir á að klára byggingu á um 28.000 fm. Í frétt um málið á börsen.dk segir að ALMC sé orðinn meirihlutaeigandi í Copenhagen Towers en 40% eru í eigu annarra fjárfesta. „Við keyptum hálft verkefnið en hagræðið er að helmingur þess er þegar í rekstri," segir Oscar Crohn hinn danski forstjóri ALMC en hann var áður forstjóri Straums í Danmörku. Crohn segir að eigið fé ALMC nemi nú 700 milljónum evra eða um 108 milljarða kr. Í efnahagsreikningnum eru eignir í norðanverðri Evrópu upp á um 200 milljarða kr. Crohn áætlar að þegar lokið verði byggingu Copenhagen Towers muni sala þess skila eigendunum um 40 milljörðum kr.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira