Íslandsbanki tekur upp persónuleikapróf 17. febrúar 2010 10:03
Íslandsbanki og Capacent hafa undirritað samkomulag um að Íslandsbanki verði sjálfstæður notkunaraðili á OPQ32 (Occupational Personality Questionnaire 32), sem er persónuleikapróf sniðið að ráðningum og þróun stjórnenda og sérfræðinga. Í tilkynningu segir að prófið sé hannað af breska fyrirtækinu SHL, sem er leiðandi fyrirtæki á þessu sviði í heiminum. Capacent hefur um árabil boðið upp á notkun OPQ og annarra prófa frá SHL en slík próf gera fyrirtækjum m.a. kleift að meta hvort umsækjandi hafi þá eiginleika sem þarf til að ná árangri í tilteknu starfi. Markviss beiting slíkra prófa eykur forspárgildi ráðninga til muna. Með samningnum verður Íslandsbanki fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem tekur upp sjálfstæða notkun á OPQ32-prófinu. Capacent og Íslandsbanki hafa unnið sameiginlega að þessum áfanga á síðustu mánuðum. Meðal annars hefur verið unnið að því að tengja saman hæfni- og gildalíkan Íslandsbanka við hæfnilíkan SHL. Með slíkri tengingu verður ráðningarferlið markvissara og gegnsærra. OPQ er útbreiddasta persónuleikaprófið í heiminum og kom fyrst á markað árið 1984. Í fyrra tóku ríflega 4 milljón manns um allan heim þetta próf. Í nýlegri prófarýni Breska sálfræðingafélagsins fær OPQ prófið bestu einkunn og er álitið með allra bestu persónuleikaprófum í heimi. „Ég er mjög ánægður með að við skulum hafa tekið þetta próf í notkun við ráðningar. Íslandsbanki leggur mikla áherslu á að ráðningarferlið sé eins og best verður á kosið og tryggi að við fáum hæfasta fólkið þegar ráðið er til bankans," segir Hafsteinn Bragason, mannauðsstjóri Íslandsbanka í tilkynningunni „Notkun prófsins eykur jafnræði meðal umsækjenda þar sem lagt er hlutlaust mat á hæfni þeirra. Samstarfið við Capacent hefur gengið mjög vel og við bindum miklar vonir við að prófið muni bæta ráðningarferlið enn frekar í framtíðinni."
Mest lesið Að umbreyta fómó í jómó um verslunarmannahelgina Atvinnulíf Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Viðskipti innlent Hagnaðist um 2,2 billjónir króna Viðskipti erlent Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Viðskipti innlent „Verið að auglýsa öryggi sem er falsöryggi“ Neytendur Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Viðskipti innlent Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Viðskipti innlent Fékk ekki að lækka afborganir því hún komst ekki í gegnum greiðslumat Neytendur Festi hagnast umfram væntingar Viðskipti innlent Vara við eggjum í kleinuhringjum Neytendur Fleiri fréttir Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Vaxtalækkun í ágúst sé nánast útilokuð Opnuðu loks Hygge eftir 245 daga bið Verðbólgan hjaðnar á ný Gáfust upp á Facebook og opna verslun fyrir notaðar íþróttavörur Endurskipuleggja reksturinn „í vinsemd og virðingu“ Tekjur jukust um helming milli ára Hátt í þrjátíu sagt upp hjá Play Gengið rétti lítillega úr kútnum en hefur aldrei verið lægra Róðurinn þungur en hefur ekki áhyggjur af Play HBO Max streymisveitan komin til Íslands Gengi Play í frjálsu falli Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Búast við tveggja milljarða tapi Samruninn muni taka langan tíma Orri til liðs við Íslandsbanka Tæpur milljarður í höfundarréttartekjur Sjá meira