Afglöp og vítaverð vanræksla endurskoðenda Glitnis Kristján Már Unnarsson skrifar 12. maí 2010 12:28
Slitastjórn Glitnis stefnir endurskoðunarfyrirtækinu PricewaterhouseCoopers fyrir afglöp í trúnaðarstarfi og vítaverða vanrækslu. Endurskoðendurnir eru sakaðir um að hafa gróflega rangfært áhættu Glitnis og stuðlað að sviksamlegri fjáröflun bankans í New York.Stefna slitastjórnar Glitnis beinir sjónum að endurskoðendum bankanna og ábyrgð þeirra á bankahruninu. PricewaterhouseCoopers voru endurskoðendur Glitnis banka en í tilkynningu slitastjórnar segir að það hafi verið þeir sem gerðu úttektir og gáfu yfirlýsingar sem fjárfestar treystu á þegar skuldabréf Glitnis voru boðin út í New York í september árið 2007.Slitastjórn fullyrðir nú í stefnu sinni að Jón Ásgeir Jóhannesson og aðrir sem stefnt er í málinu, hefðu aldrei komið fram ráðagerðum sínum án hlutdeildar PricewaterhouseCoopers. Endurskoðendurnir hafi vitað um óeðlilega áhættu Glitnis gagnvart tengdum aðilum, þeir hafið farið yfir og kvittað upp á uppgjör Glitnis, þar sem sú áhætta hafi verið gróflega rangfærð, og þannig hafi PricewaterhouseCoopers stuðlað að sviksamlegri fjáröflun Glitnis í New York.Endurskoðunarfyrirtækinu er því stefnt fyrir afglöp í trúnaðarstarfi og vítaverða vanrækslu. Í stefnunni er sérstaklega nefndur til sögunnar Sigurður B. Arnþórsson sem sá endurskoðandi hjá PricewaterhouseCoopers sem helst bar ábyrgð á vinnu fyrirtæksins fyrir Glitni.Sigurður hafi meðal annars staðið að undirbúningi skuldabréfaútboðsins og hafi skrifað undir skýrslu PricewaterhouseCoopers til Fjármálaeftirlitsins um útboðið og þá skýrslu sem fylgdi útboðinu í New York. Sigurður B. Arnþórsson var einn af eigendum PricewaterhouseCoopers á Íslandi og sat í stjórn fyrirtækisins en starfar nú sem framkvæmdastjóri Félags löggiltra endurskoðenda.
Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira