Viðskipti innlent

Gjaldþrotum fyrirtækja fjölgar en nýskráningum fækkar

Eftir atvinnugreinum voru flest gjaldþrot m.a. í heild- og smásöluverslun.
Eftir atvinnugreinum voru flest gjaldþrot m.a. í heild- og smásöluverslun.
Í mars 2010 voru 106 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 100 fyrirtæki í mars 2009, sem jafngildir 6% fjölgun milli ára. Í mánuðum fækkaði nýskráningum félaga um rúmlega 29% milli ára.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Eftir atvinnugreinum voru flest gjaldþrot í heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum og í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.

Fyrstu þrjá mánuði ársins 2010 er fjöldi gjaldþrota 292 sem er tæplega 12% aukning frá sama tímabili árið 2009 þegar 261 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.

Í mars 2010 voru skráð 164 ný einkahlutafélög (ehf) samanborið við 231 einkahlutafélög í mars 2009, sem jafngildir rúmlega 29% fækkun milli ára. Einnig voru skráð 45 samlagsfélög (slf) í mars.

Heildarfjöldi nýskráðra einkahlutafélaga er því 469 fyrstu þrjá mánuði ársins og hefur nýskráningum fækkað um tæplega 32% frá sama tímabili árið 2009 þegar 690 ný einkahlutafélög voru skráð.

Eftir atvinnugreinum voru flest einkahlutafélög skráð í heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum en flest samlagsfélög voru skráð í sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×