Styrkja vernd minnihluta 23. mars 2010 17:38 Mynd/Pjetur
Ríkisstjórn samþykkti á fundi sínum í dag að vísa tveimur frumvörpum Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, til þingflokka stjórnarflokkanna og Alþingis. Þau eru frumvarp um breytingar á lögum um hlutafélög og einkahlutafélög sem fjallar um vernd minnihluta hluthafa og frumvarp til laga um rannsókn á fjárhagsstöðu skuldugra heimila, sem leggur til að ráðherra verði heimilt að að hleypa af stokkunum víðtækri rannsókn á fjárhagsstöðu heimila og áhrifum úrræða í skuldamálum.Aukin vernd minnihluta í hluta- og einkahlutafélögum Fram kemur á vef efnahags- og viðskiptaráðuneytisins að tilgangur lagafrumvarpsins um breytingar á lögum um hlutafélög og lögum um einkahlutafélög sé að styrkja vernd minnihluta og veita valdi meirihlutans mótvægi. Hluthafi getur nú krafist þess að félagið innleysi hlut hans til þess að honum verði kleift að losna úr félaginu ef t.d. stjórn eða framkvæmdastjóri félags hefur brotið gegn hagsmunum félagsins, annar hluthafi hefur misbeitt áhrifum sínum eða djúpstæður og langvarandi ágreiningur hefur risið milli hluthafans og annarra hluthafa. Á vef ráðuneytisins segir að takmörkuð er heimild stjórnar í hlutafélögum þar sem hlutir hafa verið teknir til viðskipta á verðbréfamarkaði til þess að ákveða fjárhæð sem félagið má reiða fram sem endurgjald fyrir kaupum á eigin hlutum eða verð við sölu. Einnig verður hluthöfum heimilt að hafa með sér ráðgjafa á hluthafafundi og hafa þeir málfrelsi. Þá er rýmkuð heimild til að krefjast aukafundar, þannig að nú þarf aðeins atkvæði þeirra sem eiga 5% hlutafjár til að fara fram á fund. Önnur ákvæði frumvarpsins taka meðal annars til upplýsingaskyldu stjórna og lengingu á lágmarksfresti til boðunar hluthafafunda. Rannsókn á stöðu heimilanna Samkvæmt frumvarpi Gylfa um rannsókna á fjárhagsstöðu skuldugra heimila verður hrint af stokkunum víðtækri rannsókn á fjárhagsstöðu skuldugra heimila í ljósi aðstæðna í samfélaginu, að fram kemur á vef ráðuneytisins. Á síðasta ári vann Seðlabanki Íslands rannsókn á stöðu heimilanna. Þar sem bankinn hefur ákveðið að halda ekki áfram þeirri vinnu lagði Gylfi fram tillögu í ríkisstjórn um að ráðuneytið myndi skipuleggja nýrri rannsókn sem haldið verður áfram í eitt til tvö ár. Rannsókninni er ætlað að styðja mat á áhrifum úrræða til stuðnings skuldsettum heimilum og alla ákvarðanatöku opinberra aðila á þessu sviði. Markmið laganna er að tryggja ráðuneytinu aðgang að þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að greina skuldir heimilanna. Á vef efnahags- og viðskiptaráðuneytisins segir að allar upplýsingar verði gerðar ópersónugreinanlegar og ekki verði um varanlegt gagnasafn að ræða. Gert er ráð fyrir að viðvarandi söfnun upplýsinga geti staðið yfir í allt að eitt til tvö ár og að allri úrvinnslu verði lokið innan þriggja ára hið mesta. Ráðuneytið gerir ráð fyrir því að hrinda rannsókninni af stað um leið og frumvarpið er orðið að lögum og að fyrstu niðurstöður liggi fyrir eins fljótt og auðið er.
Mest lesið Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Sjá meira