Spilar til að heiðra minningu föður síns Henry Birgir Gunnarsson skrifar 8. apríl 2010 14:15 Magnús með svitaböndin í leik gegn Keflavík. Samsett mynd/Rósa & Pjetur
Svitaböndin sem Magnús Þór Gunnarsson, leikmaður Njarðvíkur, ber í leikjum hafa vakið athygli enda ekki hefðbundin og skarta áletruninni: GÞS. GÞS stendur fyrir Gunnar Þór Sveinbjörnsson en það er nafn föður Magnúsar sem lést á síðasta ári eftir baráttu við krabbamein. „Pabbi mætti á alla leiki sem ég spilaði frá því ég var lítill gutti. Með því að bera stafinu hans á mér í leikjum er hann enn með mér og ég spila til þess að heiðra minningu hans," sagði Magnús en hann ber svitaböndin bæði á höfði og höndum en það var mágkona hans, Birna, sem bjó þau til fyrir hann. Magnús verður í eldlínunni með Njarðvík í kvöld er Njarðvíkingar taka á móti Keflavík í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla. Keflavík vann fyrsta leikinn og Njarðvík þarf því að vinna í kvöld. „Við bara „chokuðum" í síðasta leik og það má ekki gerast aftur. Síðustu 5 mínúturnar í þeim leik voru mjög lélegar hjá okkur. Við erum búnir að fara yfir hvað klikkaði þá og það mun ekki gerast aftur," sagði Magnús ákveðinn. „Ég get alveg lofað því að við erum ekki að fara að tapa 3-0. Það verða í það minnsta fjórir leikir í þessari seríu," sagði Magnús sem hvetur fólk til þess að mæta á leikinn í kvöld enda muni Ljónagryfjan standa undir nafni á nýjan leik. „Þetta hefur ekki verið Ljónagryfjan í síðustu leikjum en það mun allt breytast í kvöld. Hún verður kölluð sínu rétta nafni í kvöld."
Dominos-deild karla Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Heimir þurfti að hreinsa tennisbolta af vellinum: „Þetta er ósanngjarnt“ Sport Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Handbolti Styrmir nýr formaður hjá Val Íslenski boltinn Komust ekki að samkomulagi og fer frítt frá félaginu Fótbolti Tilfinningaríkur sigur Littler Sport Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Handbolti Andleysi í uppeldisfélaginu komið Böðvari á óvart Íslenski boltinn HM-minningin: Maðurinn sem pissaði á völlinn Fótbolti Fleiri fréttir Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Gáfu miðann sinn og misstu af Grindavík verða Íslandsmeistari Mætti brjálaður til leiks eftir að hafa misst af verðlaunum Sjá meira