Heildarskuldir Vesturbyggðar nema 1300 milljónum 16. desember 2010 13:35 Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Vesturbyggðar.
Fjárhagsáætlun Vesturbyggðar og stofnanir sveitarfélagsins fyrir árið 2011 var samþykkt í gær á fundi bæjarstjórnar. „Að frumvarpinu stendur bæjarstjórnin öll en einnig var íbúum boðið að koma að gerð fjárhagsáætlunarinnar," að því er fram kemur í tilkynningu. Þá er bætt við að ríflega 10% íbúa sveitarfélagsins hafi tekið þátt í þeirri vinnu og að þrátt fyrir erfiða stöðu sé bæjarstjórn bjartsýn á framtíð sveitarfélagsins enda sé atvinnuástand í Vesturbyggð mjög gott. Heildarskuldir sveitarfélagsins nema hinsvegar 1300 milljónum króna en í Vesturbyggð búa tæpelga þúsund manns. „Ljóst er að rekstur sveitarfélagsins verður mjög þungur á næstu árum og gera verður ráðstafanir svo hægt verði að sinna verkefnum sveitarfélagsins og greiða af lánum. Bæjarstjórn hyggst grípa til róttækra aðgerða til að mæta vandanum og leggur eftirfarandi til: Aðhald í rekstri verði aukið verulega og unnið að skipulagsbreytingum í hagræðingarskyni, farið verði í fjárhagslega endurskipulagningu alls sveitarfélagsins og leitað eftir samningaviðræður við lánadrottna. Þá verða gjaldskrár verða hækkaðar og verkefnum forgangsraðað," segir ennfremur. Áætlað er að skuldir verði greiddar niður um 30 milljónir á árinu en heildarskuldir sveitarfélagsins eru ríflega 1300 milljónir eins og áður sagði. „Þar vegur skuld við Íbúðalánasjóð þyngst vegna verkefnis Fasteigna Vesturbyggðar við kaup á íbúðum í félagslega kerfinu frá 9. áratugnum og skuldir vegna atvinnuþróunarverkefna frá sama tíma. Enn fremur situr sveitarfélagið uppi með skuld vegna kaupa fyrri bæjarstjórnar á stofnfjárbréfum í SpKEF. Það er skýr stefna bæjarstjórnarinnar að leita eigi allra leiða til endurfjármögnunar og afskrifta," segir einnig og því bætt við að ekki sé gert ráð fyrir uppsögnum eða mikilli þjónustuskerðingu og leikskólagjöld verða ekki hækkuð. Rekstartekjur samstæðunnar eru áætlaðar 824 milljónir og rekstrargjöld 797 milljónir fyrir fjármagnsliði. Reksturinn fyrir fjármagnsliði er jákvæður um 27 millj.kr., fjármagnsliðir eru 73 millj.kr. og rekstrarniðurstaðan því neikvæð um 46 millj.kr. Veltufé úr rekstri er 41 millj.kr.
Mest lesið Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Sjá meira