Viðskipti innlent

VÍ vill harðari reglur í frumvarpi um fjármálafyrirtæki

Viðskiptaráð Íslands (VÍ) hvetur til aukins eftirlits og eftirfylgni með hertari bankareglum og vill að hluta til ganga lengra en nýlegt frumvarp fjármálaráðherra um breytingar á lögumum fjármálafyrirtæki gerir ráð fyrir.

Þetta kemur fram á vefsíðu Viðskiptaráðs. Þar segir að ráðið lagði sérstaka áherslu á aukið gagnsæi og eftirlit með upplýsingum um eignarhald á fjármálafyrirtækjum í umsögn sinni um frumvarpið til allsherjarnefndar alþingis. Aukið gagnsæi í fjármálakerfi er til þess að efla traust og trúverðugleika almennings á uppbyggingu og starfsemi fjármálafyritækja.

Einnig lagði ráðið til að lengra væri gengið með takmarkanir á heimildum banka til að eiga og reka fyrirtæki í óskyldum rekstri. Eignarhald banka á fyrirtækjum í óskyldum rekstri getur verulega skekkt samkeppnisstöðu annarra fyrirtækja og valdið mismunun á markaði milli fyrirtækja í þeirra eigu og fyrirtækja í annarra eigu.

Að auki gerði Viðskiptaráð athugasemd við þá rúmu fresti sem Fjármálaeftirlitinu eru veittir til að meta hæfi aðila til að eignast virka eignarhluti í fjármálafyrirtækjum, verulega íþyngjandi áhrif geta skapast fyrir þann sem sækist eftir virkum eignarhlut af of löngum frestum þar sem breytingar á aðstæðum geta átt sér stað yfir svo langan tíma og forsendur því raskast.

Umrætt frumvarp gerir ráð fyrir umsvifamikilli reglusetningu af hálfu Fjármálaeftirlitsins. Slík reglusetning hefur styrkjandi áhrif á lagaumgjörð um fjármálamarkaði og er til þess fallin að gera eftirlit og framfylgni skýrari og skilvirkari. Viðskiptaráð hvetur til aukins eftirlits og eftirfylgni með hertari reglum ásamt auknu gagnsæi. Þess verður þó alltaf að gæta að slíkar reglur verði ekki of íþyngjandi fyrir fjármálafyrirtæki þannig að þær tefji fyrir eða komi í veg fyrir endurreisn skilvirks fjármálakerfis í landinu.

Hægt er að sjá umsögnina í heild á vefsíðu Viðskiptaráðs.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×