Viðskipti innlent

29 milljarða velta á skuldabréfamarkaði

Kauphöll Íslands. Mynd/ Stefán.
Kauphöll Íslands. Mynd/ Stefán.
NASDAQ OMX Iceland tilkynnir að í dag var veltumesti dagur ársins á skuldabréfamarkaði, 29,1 milljarður. Fyrra veltumet á árinu var 25,9 milljarðar þann 12. mars síðastliðnum.

„Það er einkar ánægjulegt að sjá hversu virk skoðanaskipti eru á skuldabréfamarkaði. Viðskiptin hafa markast af stórum tíðindum úr efnahagslífinu og einnig því að fátt er um aðra fjárfestingarkosti. Þróunin á viðskiptum með ríkistryggð skuldabréf sýnir að tækifæri eru nú að skapast fyrir fyrirtæki á skuldabréfa- og hlutabréfamarkaði," segir Þórður Friðjónsson, forstjóri NASDAQ OMX Iceland í tilkynningu.

Viðskipti á skuldabréfamarkaði hafa verið gríðarlega mikil það sem af er septembermánuði. Meðaldagsveltan er þannig yfir 21 milljarði eða næstum tvöfalt hærri en í þeim mánuði sem er næstveltuhæstur.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×