Ríkisendurskoðun: Ámælisvert að færa ekki björgun Sjóvár til bókar 6. desember 2010 14:48 Sjóvá.
Ríkisendurskoðun hefur óskað eftir því við fjármálaráðuneytið að það geri grein fyrir þeirri lagaheimild sem byggt var á við ákvörðun um eiginfjárframlag ríkisins til SAT eignarhaldsfélags hf., sem er í eigu ríksins, vegna björgunaraðgerða handa Sjóvá eftir hrun. Ríkið reiddi fram 11,6 milljarða til þess að koma í veg fyrir gjaldþrot Sjóvár. Í ársskýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að viðskiptin hefðu ekki verið færð í bókhald ríksins þegar þau fór fram og telur Ríkisendurskoðun það ámælisvert. Fjársýslan gaf þá skýringu að þar sem viðskipti vegna Sjóvár hafi flust til Eignarhaldsfélags Seðlabanka Íslands í árslok 2009 hafi þau ekki verið bókuð hjá ríkissjóði. Framlag ríkisins til Sjóvár er til skoðunar hjá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA). Fram kemur að það sé frummat ESA að með þessum viðskiptum hafi íslenska ríkið leitt björgunaraðgerðir í þágu ógjaldfærs tryggingafélags. Vafi leiki á því að einkaaðilar á markaði hefðu farið út í slíka fjárfestingu. Ríkisendurskoðun óskaði eftir því við fjármálaráðuneytið að það gerði grein fyrir þeirri lagaheimild sem byggt var á við ákvörðun um eiginfjárframlag ríkisins til SAT eignarhaldsfélags. Ráðuneytið hefur ekki upplýst um þetta samkvæmt skýrslunni. Ríkisendurskoðun telur því óljóst á hvaða lagaheimild ákvörðunin byggði. Ríkisendurskoðun telur íslenska ríkið ekki hafa borið lagalega skyldu til að bjarga félaginu. Í minnisblaði frá Fjármálaeftirlitinu kom fram að gjaldþrot félagsins hefði alvarlegar afleiðingar. Tekið var fram að m.a. myndu viðskiptamenn félagsins líklega tapa hluta af kröfum sínum og traust til vátryggingastarfsemi hér á landi myndi minnka til muna. Áhrifin á endurtryggingasamninga annarra vátryggingafélaga yrðu neikvæð sem gæti leitt af sér hærri iðgjöld.
Tengdar fréttir Hörð gagnrýni á reikningsskil og fjármálastjórn ríkisins Ríkisendurskoðun hefur sett fram harða gagnrýni á reikningsskil og fjármálastjórn ríkisins. Gagnrýnt er að ekki skuli getið um tilteknar skuldbindingar í ríkisreikningi. Athugasemd er gerð við ráðstöfun fjár sem fékkst við sölu Lánasjóðs landbúnaðarins og að ekki sé ljóst á hvaða lagaheimild framlag til endurreisnar Sjóvár byggðist svo dæmi séu tekin. 6. desember 2010 14:13 Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu Sjá meira
Hörð gagnrýni á reikningsskil og fjármálastjórn ríkisins Ríkisendurskoðun hefur sett fram harða gagnrýni á reikningsskil og fjármálastjórn ríkisins. Gagnrýnt er að ekki skuli getið um tilteknar skuldbindingar í ríkisreikningi. Athugasemd er gerð við ráðstöfun fjár sem fékkst við sölu Lánasjóðs landbúnaðarins og að ekki sé ljóst á hvaða lagaheimild framlag til endurreisnar Sjóvár byggðist svo dæmi séu tekin. 6. desember 2010 14:13