Rannsaka meinta misnotkun MP banka 21. júní 2010 18:33
Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra rannsakar meinta misnotkun MP banka á undanþágu á gjaldeyrishöftunum. Viðskiptin, sem áttu sér stað á fyrri helming síðasta árs, námu rúmlega 80 milljónum íslenskra króna. Bankinn neitar að hafa brotið lög. Seðlabankinn hefur sent nokkur mál er varða grun um brot gegn gjaldeyrishaftalögunum til Fjármálaeftirlitsins sem svo hefur vísað málum til efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra. Eitt þeirra mála sem farið hefur þessa leið hefur nokkra sérstöðu þar sem viðskiptamaðurinn í braskinu er banki sem er starfandi hér á landi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er bankinn sem um ræðir MP banki. Málið varðar meinta misnotkun á heimild erlendra aðila til að skipta vöxtum á skuldabréfum í erlendum gjaldeyri. Grunur leikur á að bankinn hafi ranglega skráð skuldabréf á breskt dótturfélag sitt í því skyni að geta nýtt þessa heimild til að skipta vöxtunum á aflandsmarkaði. Viðskiptin, sem áttu sér stað á fyrri helming síðasta árs, námu um hálfri milljón evra eða rúmlega 80 milljónum íslenskra króna. Í samtali við fréttastofu sagði Gunnar Karl Guðmundsson, forstjóri MP banka, að sér væri ekki kunnugt um að málið væri í sérstakri rannsókn. Bankinn hefði svarað fyrirspurnum um viðskiptin og fengið óháð lögfræðiálit um málið. Það staðfesti þá skoðun bankans að viðskiptin hefðu verið í samræmi við ákvæði íslenskra laga og reglna Seðlabanka Íslands. Samkvæmt heimildum fréttastofu er málið í rannsókn hjá efnahagsbrotadeild.
Mest lesið Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira