Viðskipti innlent

Slæmt fyrir íslenskt efnahagslíf

Gissur Sigurðsson skrifar
Jón Sigurðsson, forsetjóri Össurar.
Jón Sigurðsson, forsetjóri Össurar.

Afskráning Össurar úr íslensku Kauphöllinni eru slæm tíðindifyrir íslenskan hlutabréfamarkað og efnahagslíf, segir Þórður Friðjónsson forstjóri Kuphallarinnar í viðtali við Fréttablaðið. Tilkynnt var um afskráninguna í gær. Markaðsvirði Össurar er 37 prósent af markaðsvirði allra skráðra fyrirtækja í kauphöllinni.

Þórður segir að afskráninguna megi rekja til skaðlegra áhrifa af gjaldeyrishöftum og að farið verði vandlega yfir málið samkvæmt verklagsreglum. Hlutafé Össurar verður skráð í Danmörku og í dönskum krónum. Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar segir að fyrirhuguð breyting nái aðeins til hlutabréfanna. Starfsemin hér á landi hafi verið að aukast og ekki von á breytingum þar á.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×