Viðskipti innlent

Gjaldþrotum fækkar um 27% milli ára í apríl

Í apríl 2010 voru 62 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 85 fyrirtæki í apríl 2009, sem jafngildir rúmlega 27% fækkun milli ára.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að eftir atvinnugreinum voru flest gjaldþrot í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Fyrstu fjóra mánuði ársins 2010 er fjöldi gjaldþrota 355 sem er rúmlega 2% aukning frá sama tímabili árið 2009 þegar 346 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.

Í apríl 2010 voru skráð 119 ný einkahlutafélög (ehf) samanborið við 189 einkahlutafélög í apríl 2009, sem jafngildir rúmlega 37% fækkun milli ára. Einnig voru skráð 40 samlagsfélög (slf) í apríl.

Heildarfjöldi nýskráðra einkahlutafélaga er því 588 fyrstu fjóra mánuði ársins og hefur nýskráningum fækkað um rúmlega 33% frá sama tímabili árið 2009 þegar 879 ný einkahlutafélög voru skráð.

Eftir atvinnugreinum voru flest einkahlutafélög skráð í heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum en flest samlagsfélög voru skráð í sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×