Einkaneyslunni hjálpað af botni kreppunnar 13. desember 2010 11:13
Einkaneysla virðist heldur hafa rétt úr kútnum það sem af er liðið vetri, ef marka má kortaveltutölur Seðlabankans. Margt hefur lagst á árarnar við að hjálpa einkaneyslunni upp úr botni kreppunnar. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þó sé einkaneyslan enn til muna minni en raunin var fyrir hrun sem eðlilegt er miðað við það fjárhagslega högg sem heimilin hafa orðið fyrir. Samkvæmt tölum Seðlabankans um greiðslumiðlun sem birtar voru á föstudaginn nam kreditkortavelta í nóvember 25,5 milljörðum kr. og var það 7,5% meiri velta í krónum talið en í sama mánuði í fyrra. Að raungildi, miðað við þróun vísitölu neysluverðs og gengisvísitölunnar, jókst kreditkortavelta um 10,3% milli ára. Má þakka það fyrst og fremst 41,9% raunaukningu í erlendri kortaveltu á milli ára, en innlend kreditkortavelta jókst um 4,6% á sama tíma. Svipuð þróun varð á debetkortaveltu, en debetkortavelta í innlendum verslunum nam 19,3 milljörðum kr. í nóvember og jókst að raungildi um 3,1% frá sama mánuði í fyrra. Má bæta við þetta að velta í dagvöruverslun jókst um 3,3% að raungildi á þessum tíma samkvæmt tölum sem Rannsóknasetur verslunarinnar birti á föstudaginn. Þær tölur segja því sömu sögu. Samanlagt gefur raunbreyting kreditkortaveltu og debetkortaveltu í innlendum verslunum góða mynd af þróun einkaneyslu hérlendis. Á þann kvarða jókst kortavelta um 7,1% að raungildi í nóvember frá sama mánuði í fyrra. Er það fjórði mánuðurinn í röð þar sem kortavelta eykst að raungildi milli ára, mælt með þessum hætti. Þetta er vísbending um að heimilin séu heldur að auka við sig neyslu eftir að hafa hert beltin verulega undanfarin tvö ár. Einkaneyslan jókst um 1,8% á þriðja ársfjórðungi í fyrsta sinn frá því á fyrsta ársfjórðungi 2008, eða m.ö.o. fyrir hrun. Fyrstu vísbendingar um einkaneysluna á fjórða ársfjórðungi eru þannig að vöxturinn verði jafnvel meiri en á þeim þriðja. Kaupmáttur launa er tekinn að mjakast upp á við, verðbólgan hefur verið að lækka, laun hækka, vextir að lækka og gengi krónunnar að styrkjast, auk þess hefur húsnæðisverð verið að hækka. Hefur þetta allt verið að hjálpa einkaneyslunni upp úr botni kreppunnar, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Sjá meira