Innlent

Eyjafjallaaskan braut náttúrulögmál

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Askan úr Eyjafjallajökli barst langar leiðir. Mynd/ Vilhelm.
Askan úr Eyjafjallajökli barst langar leiðir. Mynd/ Vilhelm.
Askan úr Eyjafjallajökli fauk mun lengri vegalengd en mögulegt ætti að vera. Þýskir vísindamenn hafa rannsakað öskuna frá fjallinu.

Vefurinn Softpedia.com, sem vefur Berlingske Tiderne vísar í, segir frá því að aska úr fjallinu hafi fundist á Grænlandi, í um 2400 kílómetra fjarlægð frá Íslandi. Það sé um þrefalt meiri fjarlægð en askan hefði átt að geta náð í, samkvæmt áður þekktum eðlisfræðilögmálum. Að auki telja þýsku sérfræðingarnir að öskuskýin hafi valdið meira myrkri en áður hafði verið talið mögulegt. Sumsstaðar hafi askan náð að hindra að um 50-80% sólargeislunum hafi komist óhindrað leið sína.

Þessar rannsóknir þykja mjög mikilvægar fyrir skilning fræðimanna á umhverfismálum. Þær gefi vísbendingar um það hvernig loftagnir hegði sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×