Tengd félög tóku allt út úr sjóðum 13. apríl 2010 06:00 Reglur um sjálfstæði félaga sem ráku verðbréfa- og fjárfestingarsjóði virðast hafa verið þverbrotnar, er niðurstaða rannsóknarnefndar Alþingis.
Eitt tilvik fannst þar sem starfsmaður Landsbankans mælti með því að kunningi hans legði fremur peninga á bók en í peningabréf. Aðrir fengu skilaboð um að peningamarkaðssjóðir væru hættulitlir. Rannsóknarnefnd Alþingis vill láta kanna refsiábyrgð. Vísað hefur verið til Fjármálaeftirlitsins (FME) og, eftir atvikum, sérstaks saksóknara úttektum úr peningamarkaðssjóðum á árinu vegna gruns rannsóknarnefndar Alþingis um að munur hafi verið á aðgengi eigenda hlutdeildarskírteina að upplýsingum um stöðu sjóðanna fyrir bankahrun. Þá telur nefndin að kanna þurfi hvort stjórn, framkvæmdastjórar og lykilstarfsmenn verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélaga stóru bankanna þriggja hafi skapað sér refsiábyrgð með því að brjóta starfsskyldur við stjórnun og eftirlit sjóðanna. Eins þurfi að rannsaka viðskipti á milli sjóða. Greining rannsóknarnefndarinnar leiðir í ljós starfsmenn og tengdir aðilar, sem tóku út á bilinu 50 til 100 prósent eignar sinnar, voru fleiri en ótengdir aðilar. „Eins kemur fram að fyrirtæki tengdra aðila eru stærsti hópur þeirra sem tóku út 99 til 100 prósent af eign sinni," segir í skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Þóttist hringja úr útibúiÞá kemur fram að ónógt eftirlit virðist hafa verið með starfsemi peningamarkaðssjóða af hálfu FME og misbrestur á að viðskiptavinum væri gerð grein fyrir áhættunni sem fólst í fjárfestingu í slíkum sjóðum. Í sumum tilvikum virðist jafnvel sem viðskiptavinir hafi fengið kolrangar upplýsingar um áhættu. Í flestum tilvikum voru skilaboð starfsmanna sjóða bankanna þriggja þau að fjárfestingin væri áhættulítil eða áhættulaus. „Ekki virðast allir þó hafa fengið sömu ráðgjöf en athyglisvert dæmi um það er að finna í tölvubréfi frá 28. maí 2008 þar sem starfsmaður Landsbankans mælir fremur með innlánsreikningi en peningabréfum við viðskiptamann sem virðist vera kunningi," segir í kafla skýrslu rannsóknarnefndarinnar um verðbréfa- og fjárfestingarsjóði. Þá kemur fram að nefndinni þyki tölvupóstsamskipti milli tveggja starfsmanna Landsbankans í febrúar 2008 athyglisverð í ljósi afstöðunnar til markaðssetningar og sölu áskriftar að peningamarkaðssjóðum. „Þó að ég sé að hringja fyrir söluverið eða eitthvað annað þá segist ég alltaf vera að hringja úr útibúinu þar sem viðskiptavinurinn er í viðskiptum, það gerir það persónulegra," segir í tölvupósti sem vísað er til. Þá segir í bréfi starfsmanns Kaupþings til viðskiptavinar í mars 2007: „Ertu að spá í áhættulaust? Ef svo myndi ég velja Peningamarkaðssjóð." Um leið er það mat rannsóknarnefndarinnar að fyrirkomulag áhættustýringar félaganna hafi tæpast fullnægt þeim faglegu kröfum sem gera verði til svo mikilvægs þáttar í starfsemi sjálfstæðra fjármálafyrirtækja. „Þá verður að gera athugasemdir við það að Fjármálaeftirlitið virðist ekki hafa fundið að því hvernig áhættustýringu var háttað fyrr en árið 2008," segir í skýrslunni. Brutu gegn ákvæðum lagaSérstaka athygli nefndarinnar vekur að Glitnir sjóðir og Landsvaki hafi útvistað áhættustýringu til móðurfélaganna, Glitnis banka og Landsbankans, án gilds útvistunarsamnings og án samþykkis Fjármálaeftirlitsins. Með því að leita ekki samþykkis FME fyrir útvistun áhættustýringar brutu rekstrarfélög bankanna gegn 18. grein laga um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði, að því er fram kemur í skýrslunni. „Að mati rannsóknarnefndar Alþingis verður að telja að þessi útvistun áhættustýringar til móðurfélaganna, án sérstaks samnings við móðurfélagið eða samþykkis Fjármálaeftirlitsins, endurspegli bæði skort á fagmennsku og því óhæði sem rekstrarfélögin áttu að hafa frá móðurfélögum sínum." Áhættustýringu Rekstrarfélags Kaupþings banka var hins vegar ekki útvistað til móðurfélagsins. „Þeir annmarkar voru aftur á móti á framkvæmdinni að sjóðstjórar sáu sjálfir um áhættustýringu sjóðanna en þannig höfðu þeir eftirlit með sjálfum sér." Þá segir að mælikvarðar sem notaðir hafi verið til áhættumats virðist eingöngu hafa náð til einstakra skuldara, en ekki heildarsamsetningar eigna. Í öllu falli hefði átt að skoða mun betur fylgni ávöxtunar eignanna og tengsla eigenda. „Á síðari stigum virðist ávöxtun hafa verið nánast eini mælikvarðinn sem sjóðirnir miðuðu sig við, og þá helst ávöxtun sjóða hjá samkeppnisaðilum. Eitt skýrasta dæmi þess er sala ríkistryggðra eigna úr öllum sjóðunum á árunum 2007 og 2008. Virðist áhættudreifingu þar hafa verið fórnað fyrir ávöxtun." Í skýrslunni segir að þetta hafi sjóðstjórar staðfest. olikr@frettabladid.is
Rannsóknarskýrsla Alþingis Mest lesið „Þú varst aumingi ef þú fórst á hausinn en glæpamaður ef þú græddir“ Atvinnulíf Telja SKE hafa farið offari og hætta við kaupin Viðskipti innlent „Katrín Olga, þetta er eingöngu hálftími af þínu lífi“ Atvinnulíf Að gera ekki algeng mistök sem stjórnandi í fyrsta sinn Atvinnulíf „Hann eyðileggur alltaf alla stemningu um leið og hann kemur“ Atvinnulíf „Ég nenni ekki að standa í einhverju veseni“ Atvinnulíf Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Viðskipti innlent Vilja rannsaka meint samráð með OPEC Viðskipti erlent Nýjum alþjóðaflugvelli á Grænlandi seinkar enn Viðskipti erlent Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Telja SKE hafa farið offari og hætta við kaupin Íslandsbanki greiðir 570 milljóna króna sekt Bein útsending: „Hvað verður í matinn?“ Skrifuðu undir kaup Landsbankans á TM Reynslubolti í hótelrekstri færir sig um set Icelandair tekur skarpa dýfu niður fyrir útboðsgengi Verðbólgan tekur smá kipp upp á við Wise og Þekking orðin eitt Kínverski risinn sem herjar á evrópska neytendur Sögðu upp 82 starfsmönnum Hvetja fólk til að taka verðmerkingum í Hagkaup með fyrirvara Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Kaldvík skráð á markað Ofgreiddar lífeyrisgreiðslur nærri tvöfölduðust á milli ára Dæla skyrinu af ísvélum á Skálinni Bein útsending: Framtíð EES til umræðu á þrjátíu ára afmæli Sker úr um hvort veitingamaður hafi mátt borga fyrir kókið Allir halda stjörnu og OTO fær viðurkenningu Ætla að bjóða vaxtalaus lán í aðdraganda mánaðamóta Muni gera meiri kröfur til áfengiskaupenda en flestir aðrir Vilja koma fleirum en Kynnisferðum inn í BSÍ Algjör óvissa með Dragon Dim Sum Landsbankinn telur skilmála sína nógu skýra Orðalag þurfi að vera nægilega skýrt fyrir sæmilega upplýstan neytanda Ráðinn markaðsstjóri Bílabúðar Benna Fetar í fótspor forverans og vildi einn lækka vexti Bein útsending: Efnahagsráðstefna í Reykjavík Kaupsamningum fjölgar en mikið ójafnvægi á leigumarkaði Hætta við hlutafjárútboð og skráningu Íslandshótela Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Sjá meira