Um 39% heimila skulda meira en þau eiga 13. apríl 2010 12:35 Áður en bankahrunið skall á um haustið 2008 var þó nokkur hluti heimila þegar komin í viðkvæma stöðu, þ.e. var á mörkum þess að geta staðið undir greiðslubyrði lána og framfærslu
Hlutfall heimila sem skuldar meira en það á í húsnæði hefur aukist gríðarlega frá ársbyrjun 2008. Þannig var þetta hlutfall 11% í janúar 2008 og var komið upp í 20% um það leyti sem bankahrunið átti sér stað og um þessar mundir er það líklega komið upp í 39%.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka þar sem greint er frá málstofu Seðlabankans um skuldastöðu heimilanna sem haldin var í gærdag. Í greiningu Seðlabankans kemur fram að frystingar og greiðslujöfnun hafi hækkað þetta hlutfall og að þetta hlutfall jókst örast hjá heimilum með gengistryggð íbúðalán.Áður en bankahrunið skall á um haustið 2008 var þó nokkur hluti heimila þegar komin í viðkvæma stöðu, þ.e. var á mörkum þess að geta staðið undir greiðslubyrði lána og framfærslu, í kjölfar mikillar skuldsetningar í uppsveiflunni. Þannig voru ríflega 11% heimila sem náðu ekki endum saman í ársbyrjun 2008 en ef tekið er mið af þeim sem náðu ekki endum sama eða voru á mörkum þess að geta staðið undir greiðslubyrði lána og framfærslu var hlutfallið 20%. Þetta kemur fram í nýrri greiningu Seðlabankans á stöðu heimilanna sem kynnt var í gær.Eins og gefur auga leið þá jókst þetta hlutfall enn frekar á árinu 2008 og ef ekki hefði komið til frystingu lána er líklegt að allt að 28% heimila hefði glímt við verulega greiðsluerfiðleika strax í kjölfar bankahruns. Þetta hlutfall hefði þá einnig haldist hátt.Þannig leiddi samanburður Seðlabankans á stöðu heimila í febrúar síðastliðnum með og án aðgerða í ljós að þær aðgerðir sem ráðist var í hafi lækkað hlutfall heimila sem er á mörkum þess að geta staðið undir greiðslubyrði og framfærslu. Í kjölfar aðgerða eru um 22% heimila á mörkum þess en ef ekki hefði komið til aðgerða er líklegt að þetta hlutfall hefði verið 27%.Vísbending er um að tæplega 24 þúsund heimili þurfi líklega á frekari aðgerðum að halda og virðist samband vera á milli tekna og þeirra heimila sem eru í vanda. Þannig er um 80% heimila í tekjulægsta hópnum í vanda en einungis um 2% heimila sem er í tekjuhæstu og er ljóst að hlutfall heimila í vanda minnkar ört eftir því sem ráðstöfunartekjur heimila aukast. Jafnframt virðist hlutfall heimila í vanda fara lækkandi með aldri lántakenda.Þannig er 47% í aldurshópnum 18-24 ára í vanda en um 13% þeirra sem eru 70 ára og eldri. Ljóst er að barnafólk á frekar undir högg að sækja en án barna. Þannig er um 35% einstæðra foreldra í vanda og 27% hjóna með börn en hjá einhleypingum er þetta hlutfall 25% og 14% hjá hjónum án barna. Ekki kemur á óvart að hlutfall þeirra heimila sem eru í vanda er mun hærra hjá þeim heimilum sem eru með gengistryggð íbúða- eða bílalán en hjá þeim sem eru með lán í krónum, eða um 36% á móti 16%, en um 56% af heimilum í vanda eru með gengistryggð lán íbúða- eða bílalán.Í heild eru um 23% heimila í vanda og eru þau með mun stærri hluta heildarbílaskulda en stærð hópsins segir til um. Þannig eru þau með um 42% af heildarbílaskuldum en hlutdeild þeirra í íbúðarlánum er 27% sem er meira í takt við stærð hópsins. Að mati bankans er vísbending um að skuldsetning heimila í vanda vegna bílakaupa gegni mikilvægu hlutverki í að skapa þann vanda sem þau eiga við að etja og eru um 3.800 af þeim með fleiri en eitt bílalán.
Mest lesið Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Fleiri fréttir Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Sjá meira