Seðlabankinn samdi vegna fimm sparisjóða Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. desember 2010 16:51 Seðlabankinn hefur samið um fimm sparisjóða.
Seðlabanki Íslands hefur lokið samningum um skuldir fimm sparisjóða sem ekki uppfylltu skilyrði um lágmark eigin fjár í kjölfar bankahrunsins. Þeir sparisjóðir sem um ræðir eru Sparisjóður Bolungarvíkur, Sparisjóður Norðfjarðar, Sparisjóður Svarfdæla, Sparisjóður Vestmannaeyja og Sparisjóður Þórshafnar og nágrennis. Auk þess hafa Sparisjóður Suður-Þingeyinga og Sparisjóður Höfðhverfinga greitt skuldir sínar við Seðlabankann. Í neyðarlögum er að finna heimild til handa fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs til að leggja sparisjóðum til stofnfé sem nemur allt að 20% af bókfærðu eigin fé þeirra, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Seðlabankanum. Bankinn segir að í upphafi hafi endurskipulagning skulda sparisjóða byggt á grunni laganna en þegar á leið reyndist staða sparisjóðanna verri en áður var talið og komið hafi í ljós að framlag samkvæmt neyðarlögunum myndi ekki duga til að endurreisa þá fjárhagslega. Sparisjóðirnir þurftu því á aðkomu kröfuhafa að halda til að fjárhagsleg endurskipulagning þeirra væri möguleg. Seðlabanki Íslands varð helsti kröfuhafi sparisjóðanna við ákvörðun Fjármálaeftirlitsins 17. apríl 2009. Þá fékk Seðlabankinn kröfurnar sem endurgjald þegar honum var gert að taka yfir innlán sparisjóða hjá Sparisjóðabankanum við fall hans. Í samráði við fjármálaráðuneytið var sparisjóðum boðið að semja um uppgjör á skuldum sínum við Seðlabankann að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Í kjölfarið hófu sparisjóðirnir að vinna að tillögum um fjárhagslega endurskipulagningu og voru þær kynntar Seðlabankanum og Fjármálaeftirlitinu. Í kjölfarið samþykkti Fjármálaeftirlitið að sparisjóðirnir gengju til endanlegra samningaviðræðna við Seðlabanka Íslands og aðra kröfuhafa um fjárhagslega endurskipulagningu, enda væri kröfum eftirlitsins fullnægt. Þá samþykkti ESA endurskipulagningaráform ríkisins og Seðlabankans fyrir fimm sparisjóði í júní 2010.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Lilja Dögg ráðin forstjóri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Sjá meira