Tekjur ríkissjóðs drógust saman um 12 milljarða 14. maí 2010 12:20 Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, vill þó ekki skella skuldinni á skattahækkanir ríkisstjórnarinnar. Mynd/Valgarður Gíslason
Tekjur ríkissjóðs drógust saman um rúma 12 milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í yfirliti fjármálaráðuneytisins um greiðsluafkomu ríkissjóðs. Tekjur ríkissjóðs vegna fjármagnstekjuskatts drógust saman um nærri helming. Tekjur ríkissjóðs á fyrsta ársfjórðungi námu tæpum 111 milljörðum króna en á sama tímabili í fyrra námu þær rúmum 123 milljörðum. Verulega dregur úr tekjum ríkissjóðs vegna fjármagnstekjuskatts - sem fer úr 28 milljörðum í sextán milljarða milli ára. Innheimta skatta á fyrirtæki minnkar um þriðjung en tekjuskattur einstaklingar hækkar hins vegar lítillega. Fram kemur í yfirliti fjármálaráðuneytisins að tekjuþróunin sé lakari heldur áætlanir gerðu ráð fyrir. Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, vill þó ekki skella skuldinni á skattahækkanir ríkisstjórnarinnar og segir þvert á móti að tekjur ríkissjóðs hefðu verið mun minni ef ekki hefði komið til þeirra. „Þær eru talsvert meiri en þær væru ella vegna þess að það var farið í skattkerfisbreytingar og hækkaðir ýmsir skattar, en tekjurnar eru mjög tengdar veltu og umsvifum í þjóðfélaginu. Það var slaki aðeins á fyrstu mánuðinum sem við höfðum auðvitað áhyggjur af en það hefur heldur rétt af aftur þegar fjórir mánuðir eru skoðaðir. Þannig að í öllum aðalatriðum erum við á áætlun," segir Steingrímur. En hefur þetta áhrif á niðurskurðaráform ríkisstjórnarinnar? „Nei en þetta hefur áhrif á það hvernig við stillum af endurskoðun efnahagsáætlunarinnar til næstu ára. Því við getum ekki bara leyft okkur að horfa á árið í ár. Við verðum líka að horfa til áranna 2013, 2014 og það hvernig við náum að lokum jöfnuði í ríkisrekstrinum. Við verðum að vinna þennan halla sem stefnir í að verða 90 til 100 milljarðar í ár niður í núll á ekki of mörgum árum," segir Steingrímur.
Mest lesið Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Sjá meira