Viðskipti innlent

Eimskip opnar nýja vefsíðu og þjónstuvef

Eimskip opnar í dag nýja vefsíðu og nýjan þjónustuvef fyrir viðskiptavini félagsins sem veitir þeim aðgang að öllum starfsstöðvum félagsins um heim allan.

Í tilkynningu segir að ný vefsíða félagsins auðveldar viðskiptavinum að nálgast þá þjónustu sem félagið bíður uppá og einnig opnar félagið mjög fullkominn þjónustuvef, sem ber nafnið ePort. Þjónustuvefurinn ePort bíður uppá margar nýjungar og geta viðskiptavinir nálgast flest það sem skiptir máli er snýr að viðskiptum og samskiptum við félagið.

"Margir hafa lagt á sig mikla vinnu við að gera þjónustuvefinn sem skilvirkastan og á sama tíma hefur þess verið gætt að hann uppfylli væntingar viðskiptavina. Það er von okkar að vefurinn muni einfalda enn frekar aðgengi viðskiptavina okkar að upplýsingum og þjónustu félagsins," segir Gylfi Sigfússon forstjóri Eimskipafélags Íslands í tilkynningunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×