Tveimur núllum ofaukið í svari efnahags- og viðskiptaráðherra Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. desember 2010 15:12 Árni Páll Árnason er efnahags- og viðskiptaráðherra.
Það skeikaði tveimur núllum í svari efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um eign Íslendinga í sjávarútvegsfyrirtækjum erlendis. Fram kom í svarinu sem birtist á vef Alþingis í gær, og Vísir sagði frá, að eign Íslendinga í erlendum sjávarútvegsfyrirtækjum næmi tæpum 900 milljörðum króna. Í leiðréttu svari kemur hins vegar fram að upphæðin nemur 9 milljörðum króna. Tölur efnahags- og viðskiptaráðherra eru fengnar úr Seðlabankanum. Þar fengust þær upplýsingar að með beinni erlendri fjárfestingu Íslendinga er eingöngu átt við erlend dótturfyrirtæki í eigu fyrirtækja sem skrásett eru á Íslandi og Íslendinga sem búsettir eru á Íslandi. Fjárfestingar erlendra dótturfyrirtækja í eigu innlendra aðila í öðrum erlendum dótturfyrirtækjum falla því utan þessarar skilgreiningar og eru mældar í viðkomandi landi þó vissulega hafi afkoma þeirra áhrif á afkomu erlendu dótturfyrirtækjanna í eigu innlendra aðila og skili sér þannig til innlends móðurfyrirtækis. Seðlabankinn segir einnig að bein fjármunaeign í fyrirtæki samanstandi af hlutdeild í bókfærðu eigin fé þess og hreinni lánastöðu gagnvart því. Í þessu fylgi Seðlabanki Íslands alþjóðlegum stöðlum OECD og IMF. Mikilvægt sé að greina á milli upplýsinga um bókfært verð annars vegar og markaðsverð hins vegar. Fréttin, sem birtist á Vísi í gær, um fjármunaeign Íslendinga í erlendum sjávarútvegsfyrirtækjum hefur nú verið fjarlægð af Vísi, enda byggði hún á röngum upplýsingum.
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fækka heimsóknum til muna með einni breytingu Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira