Innlend velta vex um 7,4% í krónum talið 19. maí 2010 11:52
Innlend velta samkvæmt virðisaukaskattskýrslum var ríflega 7,4% meiri í krónum talið á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs samanborið við sama tímabili í fyrra. Að teknu tilliti til verðlagsbreytinga er aukningin þó mun minni, eða um 0,5%.Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þetta sé í fyrsta sinn síðan á tímabilinu september til október 2008 sem velta eykst að raunvirði frá sama tímabili árið á undan. Á þennan mælikvarða hefur því verulega dregið úr samdrættinum í hagkerfinu en til samanburðar var samdrátturinn 17,0% að raunvirði á fyrstu tveimur mánuðum ársins í fyrra samanborið við sama tímabil 2008. Þetta má sjá í tölum yfir veltu fyrirtækja samkvæmt VSK-skýrslum sem Hagstofan birti nú í morgun.Í þessum tölum má jafnframt sjá hversu ólíku þróun veltu er í hinum ýmsu atvinnugreinum sem er til marks um hversu misjöfn efnahagsleg skilyrði íslensk fyrirtæki búa við um þessar mundir. Þannig er enn verulegur samdráttur í mörgum atvinnugreinum sem tengjast innlendri eftirspurn. Má þar nefna byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Á ofangreindu tímabili veltu þessar greinar 15,1% færri krónum en á sama tíma árið áður.Einnig er enn töluverður samdráttur í veltu bílasölu en sú grein, líkt og sú sem á undan er getið, hefur átt verulega undir högg að sækja frá því að bankahrunið skall á. Þannig velti bílasala 17,0% færri krónum á fyrstu tveimur mánuðum ársins samanborið við sama tímabil 2009 Á hinn bóginn jókst veltan í umboðs- og heildsölu um ríflega 3% í krónum talið á sama tíma og velta í smásölu um 0,6%.Miðað við tölur Hagstofunnar er ljóst að þær greinar sem heyra undir útflutning eru í annarri stöðu. Þannig jókst veltan í fiskveiðum um 16,9% að nafnvirði á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs frá sama tímabili í fyrra. Þá jókst velta í matvæla- og drykkjarvöruiðnaði, sem nær bæði yfir landvinnslu sjávarfangs og matvöruframleiðslu til innlendrar neyslu, um 10,9% að nafnvirði á sama tímabili. Mun meiri aukning var á veltu í framleiðslu málma sem jókst um 93,6% á tímabilinu. Velta í flugsamgöngum jókst um 7,7% í krónum talið og velta hjá hótelum og veitingastöðum um rúm 9,2%.
Mest lesið Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira