Fyrsta hækkun íbúðaverðs í borginni frá ágúst í fyrra 17. febrúar 2010 11:12
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,4% í janúar frá fyrri mánuði. Þessi hækkun kemur í kjölfar mikilla lækkana undanfarna mánuði en íbúðaverð hefur ekki hækkað milli mánaða síðan í ágúst síðastliðnum.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að á síðustu tólf mánuðum hefur íbúðaverð lækkað um 10,2% að nafnvirði en um 19,0% að raunvirði m.v. vísitölu neysluverðs án húsnæðis.Skýrist hækkunin nú í janúar einkum af 3,3% hækkun á verði sérbýlis milli mánaða en verð á fjölbýli lækkaði um 0,3%. Þrátt fyrir þessa hækkun á verði sérbýlis í janúar hefur verð þess lækkað meira en verð á fjölbýli á síðustu tólf mánuðum, eða að nafnvirði um 11,4% samanborið við 9,7% verðlækkun fjölbýlis. Það var Fasteignaskrá Íslands sem birti upplýsingar um vísitölu íbúðarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu í gær.Á markaði sem er jafn lítill og íbúðamarkaðurinn er á höfuðborgarsvæðinu um þessar mundir er óráðlegt að taka verðsveiflur milli einstakra mánaða í mælingum Fasteignaskrárinnar of bókstaflega. Makaskiptasamningar eru teknir út þegar verðþróunin er metin af Fasteignaskránni, en slíkir samningar hafa verið ríflega þriðjungur allra viðskipta á markaðinum undanfarna mánuði.Það sem eftir stendur getur vart talist þverskurður af eðlilegum markaði og geta einstök viðskipti skekkt myndina talsvert. Eykur þetta flökt í gögnum milli mánaða.„Við teljum að þessi hækkun nú í janúar sé aðeins tímabundið flökt á leið íbúðaverðs til frekari lækkunar. Ljóst er að umhverfið á íbúðamarkaði er enn erfitt sem endurspeglar hvort tveggja framboðs- og eftirspurnarhlið markaðarins," segir í Morgunkorninu.„Hin mikla uppsveifla undanfarinna ára á íbúðamarkaði hefur orðið til þess að enn er nokkur fjöldi óseldra íbúða eftir á framboðshlið markaðarins nú þegar ládeyða hefur verið á þessum markaði sem skapar þrýsting til verðlækkunar.Jafnframt hafa fjármálastofnanir eignast mikið af íbúðarhúsnæði á undanförnum mánuðum og er ljóst að þessar stofnanir þurfa með tímanum að losa um slíkar fasteignir sem augljóslega mun einnig skapa frekari þrýsting til verðlækkunar. Jafnframt er þess að vænta að hagur heimilanna versni enn á næstunni. Þannig er spáð að atvinnuleysi, sem nú er þegar mikið, fari vaxandi og haldist mikið alveg fram á næsta ár og kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna rýrni enn frekar.Því er vandséð hvað í efnahagsumhverfi heimilanna ætti að vera að kalla á aukin umsvif á íbúðamarkaði og þá verðhækkun íbúðaverðs. Til viðbótar má benda á að lækkun íbúðaverðs hefur verið frestað að vissu marki þar sem enn er ekki búið að leysa að fullu vanda þeirra sem ráða ekki við afborganir lána sinna og eru í neikvæðri eiginfjárstöðu. Sú leiðrétting á eftir að eiga sér stað og mun hún eflaust kalla á lækkun íbúðaverðs."
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira