Viðskipti innlent

Hagur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða vænkast

Eignir verðbréfa- og fjárfestingarsjóða námu 244 milljörðum kr í lok apríl og hækkuðu um 8,3 milljarða kr. milli mánaða.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að innlend verðbréf hækkuðu um 6,4 milljörðum kr. í mánuðinum og þar af nam hækkun annarra ríkisbréfa 4 milljörðum kr. Sjóður og bankainnstæður hækkuðu um tæpa 2 milljarða kr. í mánuðinum.

Í lok apríl var opið fyrir viðskipti með hlutdeildarskírteini í 51 sjóðum. Auk þess voru 18 sjóðir í slitaferli taldir með í birtum apríl gögnum, þar sem verið er að gera upp eignir sjóðanna áður en þeim verður lokað.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×