Jöfn kynjahlutföll í framkvæmdastjórninni 6. október 2010 06:00 Landsbankinn réði til sín átta nýja framkvæmdastjóra í gær. 300 manns sóttu um stöðurnar. Fréttablaðið/Valli
Átta nýir framkvæmdastjórar voru ráðnir til Landsbankans í fyrradag, en þeir munu hver stýra sínu sviði í nýju skipuriti bankans. Alls sóttu um 300 manns um stöðurnar. Ráðin voru þau: Árni Þór Þorbjörnsson, Frans Páll Sigurðsson, Helgi Teitur Helgason, Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir, Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, Hreiðar Bjarnason, Jensína Kristín Böðvarsdóttir og Perla Ösp Ásgeirsdóttir. Kristján Kristjánsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans, segir í samtali við Markaðinn að um sé að ræða áherslubreytingu í starfi bankans. „Við erum að setja mun meiri áherslu á viðskiptavinina þar sem við vinnum eftir lykilhugtökunum: hlusta, læra og þjóna.“ Í tilkynningunni vekur bankinn athygli á því að í hópi nýju framkvæmdastjóranna eru jafn margar konur og karlar. Kristján segir að það sé meðvitað framtak, enda sé jafnrétti eitt af hugtökunum sem eru í stefnu Landsbankans. Skuldavandi heimila og fyrirtækja er eitt af stærstu viðfangsefnum Landsbankans að sögn Kristjáns. Til að bregðast við því, eru í skipuritinu tvær einingar, heilt svið til að þjóna fyrirtækjum og ný ráðgjafastofa fyrir heimili í skuldavanda. - þj
Mest lesið eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó Atvinnulíf Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Eldsneytissparnaður með Mobil Delvac Kynningar Fleiri fréttir Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Sjá meira