Formaður Landsvaka kærður til saksóknara 22. febrúar 2010 18:45
Fjármálaeftirlitið hefur kært Stefán H. Stefánsson, fyrrverandi stjórnarformann Landsvaka, peningamarkaðssjóða Landsbankans, til sérstaks saksóknara fyrir alvarlegt brot á bankaleynd en Stefán sendi bankastjórum Landsbankans trúnaðarupplýsingar um einstaka viðskiptavini sjóðanna þvert gegn fyrirmælum laga. Stjórnarmönnum, framkvæmdastjórum og öðrum starfsmönnum fjármálafyrirtækja er óheimilt að greina frá neinu sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og snertir viðskipta- eða einkamálefni viðskiptavina, en það kemur fram í lögum um fjármálafyrirtæki. Í sömu lögum er undanþága um upplýsingagjöf til móðurfélags en nún nær ekki til málefna einstakra viðskiptavina. Stefán H. Stefánsson, fyrrverandi forstöðumaður eignastýringarsviðs Landsbankans og stjórnarformaður Landsvaka, sem rak m.a peningamarkaðssjóði Landsbankans, er grunaður um brot á bankaleynd með því að hafa á árinu 2008, fyrir bankahrunið, sent stjórnendum Landsbankans, þeim Sigurjóni Þ. Árnasyni og Halldóri J. Kristjánssyni, trúnaðarupplýsingar um viðskiptavini Landsvaka. Um er að ræða viðkvæm trúnaðargögn sem snerta fjárhagsstöðu nafngreindra einstaklinga og skuldbindingar þeirra gagnvart Landsvaka. Samkvæmt heimildum fréttastofu er ekki ljóst í hvaða skyni Stefán sendi bankastjórunum trúnaðargögn um viðskiptavini, en litið er svo á að um alvarlegt brot á bankaleynd sé að ræða. Rannsókn mun m.a beinast að því að upplýsa í hvaða tilgangi trúnaðarupplýsingar um einstaka viðskiptavini hafi verið sendar bankastjórunum tveimur. Stefán H. Stefánsson og Sigurður Óli Hákonarson, framkvæmdastjóri Landsvaka, óskuðu sjálfir eftir því að láta af störfum hjá Landsbankanum hinn 29. nóvember 2008. Þetta gerðu þeir til að skapa frið um Landsvaka og engar vísbendingar eru um að meint brot Stefáns tengist uppsögn hans. Brot gegn bankaleynd varðar sektum eða fangelsi allt að tveimur árum ef sakir eru miklar. FME er ekki skylt að vísa brotum á bankaleynd til lögreglu nema eftirlitið telji þau vera „meiriháttar" í skilningi laga um fjármálafyrirtæki og er það tilfellið í máli Stefáns.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira