Ágreiningur í Peningastefnunefnd um síðustu vaxtalækkun 6. október 2010 16:14
Ágreiningur var í Peningastefnunefnd um hveru mikil stýrivaxtalækkunin ætti að vera á fundi nefndarinnar í síðasta mánuði. Spilar þar inn í að afnám gjaldeyrishafta er framundan og vildu sumir nefndarmenn því fara varlega í sakirnar. Þetta kemur fram í fundargerð nefndarinnar sem birt hefur verið á vefsíðu Seðlabankans. "Nefndarmenn ræddu þann möguleika að lækka vextina um 0,5 til 1,25 prósentur. Með hliðsjón af umræðunni lagði seðlabankastjóri til vaxtalækkun um 0,75 prósentur, sem mundi lækka vexti á viðskiptareikningum innlánsstofnana og hámarksvexti innstæðubréfa í 4,75% og 6,0% hvora um sig, vexti á lánum gegn veði til sjö daga í 6,25% og daglánavexti í 7,75%," segir í fundargerðinni. "Þótt vilji til að taka bæði stærra og minna skref hafi verið til staðar, voru allir nefndarmenn sammála um að við núverandi aðstæður bæri svo lítið á milli að þeir samþykktu tillögu seðlabankastjóra. Rök þeirra nefndarmanna sem vildu taka minni skref voru þau að aðhald peningastefnunnar þyrfti að vera meira þar sem styttist í væntanlegt afnám gjaldeyrishaftanna. Rök þess nefndarmanns sem vildi meiri vaxtalækkun voru þau að aðhald peningastefnunnar mælt með raunvöxtum væri líklega vanmetið, þar sem mæld verðbólga endurspeglaði fyrst og fremst gengisbreytingar síðastliðna tólf mánuði. Ennfremur væri aðhald peningastefnunnar of mikið í ljósi slæmrar stöðu þjóðarbúskaparins og væntanlegs aðhalds í ríkisfjármálum. Nefndin telur að eitthvert svigrúm sé enn til staðar til áframhaldandi slökunar peningalegs aðhalds haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist og hjaðni verðbólga eins og spáð er. Áætlanir um afnám hafta á fjármagnshreyfingar skapa hins vegar óvissu um hversu mikið svigrúmið er til skemmri tíma. Nefndin er reiðubúin til þess að breyta aðhaldi peningastefnunnar eins og nauðsynlegt er með hliðsjón af því tímabundna markmiði hennar að stuðla að gengisstöðugleika og í því skyni að tryggja að verðbólga verði nálægt markmiði til lengri tíma litið." Fundargerð peningastefnunefndar í september
Mest lesið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Samstarf Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Sjá meira