Mikill munur á mælingum á skuldatryggingaálagi 27. apríl 2010 12:06
Mikill munur er á mælingu á skuldatryggingaálagi á ríkissjóði hjá gagnveitunum Markit og CMA. Vísir.is greindi frá því í gærdag að samkvæmt Markit Itraxx vísitölunni var skuldatryggingaálagið þá 353 punktar. Á CMA í dag er álagið mælt 401 punktar.Í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka segir að skuldatryggingaálag ríkissjóðs Íslands hefur hækkað nokkuð allra síðustu daga. Nú rétt undir hádegi stóð álagið til 5 ára í 401 punktum (4,01%) en síðastliðinn föstudag stóð það í 370 punktum.„Eins og kunnugt er hefur áhættuálagið á ríkissjóð lækkað nær stöðugt frá því í byrjun febrúar síðastliðins þegar það náði 675 punktum, og hefur það haldist undir 400 punktum síðustu vikurnar. Telja má líklegt að hækkunin að þessu sinni sé aðeins tímabundin og komi til með að ganga til baka," segir í Morgunkorninu.„Má hér benda á að verulega hefur ræst úr erlendri lausafjárstöðu ríkissjóðs vegna endurnýjunar fjármögnunar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og Norðurlöndunum. Þetta leiddi m.a. til þess að matsfyrirtækið Moody´s breytti horfum um lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs síðastliðinn föstudag úr neikvæðum í stöðugar.Þrátt fyrir að ekki sé hægt að útiloka áhrif eldgossins í Eyjafjallajökli til hækkunar á áhættuálaginu þá virðist líklegt að þessi hækkun tengist ekki sérstökum innlendum þáttum heldur komi í kjölfar aukinnar áhættufælni á mörkuðum, enda hefur álagið á mörg önnur ríki Evrópu verið að hækka á sama tíma.Augljóslega er hér meðal annars átt við áhættuálagið á ríkissjóð Grikklands enda fer nú óðum að líða að því að gríska ríkið þurfi að reiða fram 9 ma. evra til þess að greiða af skuldabréfum sem eru á gjalddaga 19 maí. Er enn veruleg óvissa uppi um hvort að Grikkir komi til með að geta greitt af lánum sínum. Nú rétt undir hádegi var áhættuálagið á gríska ríkið til 5 ára komið í 764 punkta.Þessi mikla óvissa um fjárhagslega stöðu gríska ríkisins hefur svo aftur smitað út frá sér og þá sérstaklega til annarra evruríkja sem einnig glíma við mikinn halla á opinberum fjármálum, svo sem Írlands, Spánar og svo ekki sé talað um Portúgal. Þannig var áhættuálagið á portúgalska ríkið 115 punktar um miðjan mars en nú í morgun stóð áhættuálagið í 349 punktum. Á sama tíma hefur áhættuálagið á írska ríkið hækkað úr 116 punktum í 228 punkta og á hið spænska úr 94 punktum í 204 punkta."Hér má bæta því við að þrátt fyrir þessa hækkun hjá CMA er Ísland dottið niður í 9. sæti á lista CMA yfir þær 10 þjóðir sem taldar eru í mestri hættu á þjóðargjaldþroti. Ísland vermdi lengi 5. sæti listans eftir bankahrunið haustið 2008 en hefur síðan fikrað sig niður listann.
Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira